fbpx
Sunnudagur 02.júní 2024
Eyjan

Gleðilegt ár, það besta og versta og smávegis um brennur

Egill Helgason
Sunnudaginn 31. desember 2017 15:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV bað mig um að nefna það sem mér hefði þótt best og verst á árinu. Eftir stutta umhugsun setti ég þetta á blað og það birtist í áramótaútgáfu blaðsins.

Það versta:

Það sem mér er efst í huga þegar spurt er hvað sé verst á árinu er síaukin völd stórfyrirtækja í heimi upplýsinga- og nettækni. Áhrif Google, Facebook og Amazon eru fordæmalaus. En það er eins og ekki megi hrófla við þessum fyrirtækjum – þá virkar það eins og maður sé á móti framtíðinni. Við lifum á tíma blindrar tæknihyggju, við látum tæknina stjórna því hvert við förum í stað þess að reyna að stjórna því sjálf hvert tæknin leiðir okkur.

Við erum að færast inn á svið gervigreindar. Mannshöndin verður óþörf við ýmis störf og mannshugurinn líka. Fjöldi fólks tapar vinnunni, verður jafnvel utanveltu í samfélögunum, en gróðinn safnast á sífellt færri hendur án þess að við höfum nokkra hugmynd um hvernig við ætlum að deila honum réttlátlegar eða nokkur áform þar um.

Stóru fyrirtækin safna sífellt meiri upplýsingum um einstaklingana sem veldur því að erfiðara verður að keppa við þau eða hrinda þeim af stallinum. Við sjáum út um allt misnotkun þessara upplýsinga, hún á bara eftir að færast í aukana. Falskar fréttir og markauglýsingar eru bara byrjunin. Á sama tíma mega hefðbundnir fjölmiðlar – sem eru nauðsynlegir fyrir siðuð og heilbrigð samfélög – sín einskis gagnvart netrisunum. Þeir stjórna aðganginum.

Illu heilli er það gróðafíknin ein sem knýr stórfyrirtækin áfram, viljinn til að stækka sífellt og öðlast meiri völd. Það er helst að Evrópusambandið skynji hættuna og reyni að koma böndum á risana, en það virðist því miður vera vonlítið verk. Menn hefðu þurft að vakna fyrir alllöngu og byrja að brjóta upp þessi fyrirtæki, líkt og Roosevelt gerði með auðhringana í upphafi tuttugustu aldar.

Það besta:

Mér dettur fyrst í hug látlaus gróska í íslensku menningarlífi. Bókmenntum, tónlist, leikhúsi, kvikmyndum. Ég nefni dæmi úr tveimur fyrstu greinunum, ég hef mestan áhuga á þeim. Ég hef haldið því fram að í bókmenntunum séum við að lifa gullöld. Það er ekki síst vegna þess að íslenskir höfundar eru núorðið þýddir á fjölmörg tungumál, einangrunin hefur verið rofin, lesendahópurinn hefur stækkað og um leið hafa höfundarnir okkar orðið djarfari í efnistökum. Sumir af stóru eldri höfundunum gáfu ekki út bækur á þessu ári, en í staðinn fáum við bækur eftir ungt fólk sem margar lofa afar góðu.

Víkingur Heiðar Ólafsson á eina af vinsælustu klassísku plötunum í heiminum á þessu ári, hljóðritanir á verkum Philips Glass, hann er heimspíanisti. Það er haldin íslensk tónlistarhátíð í tengslum við Los Angeles Philharmonic í Disney Hall í LA. Þar er fremstur í flokki tónskáldið Daníel Bjarnason. Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur eru flutt víða um heim. Hljómsveitin Kaleo er heimsfræg og túrar með Rolling Stones. Það er líka mikil gróska í djassinum, hann mætti fá meiri athygli. Músíklífið byggir á gríðarlega góðu starfi sem er unnið í tónlistarskólum landsins.

— — —

Svo fylgir hér með ljósmynd af bálkesti frá árinu 1964. Líklega er þetta Ægissíðubrennan. Einhvern veginn finnst manni að brennurnar hafi verið stærri og þéttari í þá tíð. Þá voru það íbúarnir sem söfnuðu sjálfir í bálköstinn. Við sjáum dugnaðinn, þarna er verið að hífa efni upp á topp brennunnar sem er margra mannhæða há.

Nú er það borgin sem sér um þetta og manni finnst eins og brennurnar fuðri upp á örskotsstundu. Ægissíðubrennan er reyndar orðin einn allsherjar túristastaður, maður er eiginlega hættur að finna gamla vini og skólafélaga þar innan um alla ferðamannamergðina sem er ekið að brennunni í rútum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Bragi fær biðlaun sem Fjóla fékk ekki – „Til marks um það sem koma skal hvar sérhagsmunum Sjálfstæðismanna er hampað á kostnað almennings“

Bragi fær biðlaun sem Fjóla fékk ekki – „Til marks um það sem koma skal hvar sérhagsmunum Sjálfstæðismanna er hampað á kostnað almennings“
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Saka meirihlutann í Kópavogi um brot á skuldbindingum – Úthluti aðeins lóðum til efnameira fólks

Saka meirihlutann í Kópavogi um brot á skuldbindingum – Úthluti aðeins lóðum til efnameira fólks
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar: Nýr langtímasamningur við sjúkraþjálfara

Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar: Nýr langtímasamningur við sjúkraþjálfara
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Eiríkur ætlar ekki að kjósa fyrrum nemanda sinn – „Er mér það lífsins ómögulegt“

Eiríkur ætlar ekki að kjósa fyrrum nemanda sinn – „Er mér það lífsins ómögulegt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Skuggalegar niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar

Skuggalegar niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund

Orðið á götunni: Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund