fbpx
Föstudagur 31.október 2025
433Sport

Draugamark í Garðabæ þegar Stjarnan vann FH

433
Mánudaginn 7. apríl 2025 21:10

Besta deildin Stjarnan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjarnan skoraði draugamark í 2-1 sigri liðsins á FH í kvöld þar sem dómari leiksins Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var í sviðsljósinu.

Markalaust var í hálfleik en FH-ingar vildu fá vítaspyrnu Tómas Orri Róbertsson féll í teignum.

Vilhjálmur Alvar dæmdi ekkert og voru FH-ingar verulega ósáttir.

Það var svo á 64 mínútu sem Stjarnan skoraði draugamark, Örvar Eggertsson skallaði þá boltann að marki en Mathias Rosenörn komst fyrir boltann.

Vilhjálmur Alvar ætlaði ekki að dæma mark en Gylfi Már Sigurðsson, aðstoðardómari flaggaði markið. Í sjónvarpi var ómögulegt að segja hvort boltinn væri inni.

Það var svo fjórum mínútum síðar sem Andri Rúnar Bjarnason skoraði fyrir Stjörnuna og kom liðinu í 2-0. Dagur Trautason lagaði stöðuna fyrir FH undir lok leiks en þar við sat.

Fyrstu umferð Bestu deildarinnar er þar með lokið og heldur ballið áfram um næstu helgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Svíkur loforð skömmu eftir að hann gaf það – Húðflúr vekur mikla athygli

Svíkur loforð skömmu eftir að hann gaf það – Húðflúr vekur mikla athygli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þorsteinn útskýrir ákvörðun sína – „Gott að koma inn fyrsta markinu“

Þorsteinn útskýrir ákvörðun sína – „Gott að koma inn fyrsta markinu“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sagðir færa áhuga sinn á næsta stig – Fyrrum samherjar hjá United gætu spilað saman á ný

Sagðir færa áhuga sinn á næsta stig – Fyrrum samherjar hjá United gætu spilað saman á ný
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Tveir leikmenn kveðja Skagamenn

Tveir leikmenn kveðja Skagamenn
433Sport
Í gær

Mynd af matnum sem var til sölu vekur óhug – „Myndi ekki gefa hundi þetta“

Mynd af matnum sem var til sölu vekur óhug – „Myndi ekki gefa hundi þetta“
433Sport
Í gær

Þorsteinn fór með landsliðið í ballett – „Mjög sérstakt að vera í þessum aðstæðum“

Þorsteinn fór með landsliðið í ballett – „Mjög sérstakt að vera í þessum aðstæðum“