fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Skiptar skoðanir á Skaupinu – „Ég var ekki alveg sátt“ – „Man ekki eftir að hafa hlegið jafn mikið“

Fókus
Miðvikudaginn 1. janúar 2025 11:00

Sex af sjö höfundum áramótaskaupsins í ár, þau Sveinn Ólafur, Hugleikur, Ólafur, María, Friðgeir og Katla Margrét, talið frá vinstri. Á myndina vantar Salvöru Gullbrá sem var önnum kafin við skrif á öðrum vettvangi. Mynd: Ragnar Visage

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Af ummælum á samfélagsmiðlum að dæma eru skiptar skoðanir meðal þjóðarinnar á Áramótaskaupinu 2024. Sum voru ánægð, önnur misánægð og enn önnur ekkert sérstaklega ánægð. Ummælin skipta mörg hundruðum ef ekki þúsundum og því er hér aðeins rými fyrir nokkur dæmi.

Anna Kristjánsdóttir fyrrum vélstýra hefur búið á Tenerife undanfarin ár og verið dugleg við að segja frá lífi sínu á eyjunni á Facebook. Hún eyddi hins vegar áramótunum á Íslandi og horfði á Skaupið. Anna gefur Skaupinu falleinkunn:

„Ég var ekki alveg sátt við skaupið að þessu sinni, kannski aðeins skárra en stundum áður, en ég hefi séð þau mörg skemmtilegri. Gef því 4,5 af tíu mögulegum. Það var of langdregið á köflum en verst þótti mér að sjá lítinn og pervisinn mann leika hinn stóra og stæðilega Bjarna Ben. Þótt ég sé honum sjaldnast sammála í pólitík, finnst mér ekki sæma að gera hann minni á velli en hann er í reynd. Af nógu er að taka samt.“

Jakob Bjarnari Grétarssyni blaðamanni fannst enn minna til Skaupsins koma en Önnu:

„Jesús Pétur.“

Jóhann Hlíðar Harðarson kollegi Jakobs andmælti því hins vegar í athugasemd:

„Frábært skaup.“

Hörmung og frábært

Skoðanir voru sömuleiðis skiptar á samfélagsmiðlinum X:

„Þá er Áramótamyndbandi aktívista og yfirlætislegra vinstri manna loks lokið Þvílíkur léttir!“

„Þetta er versta skaup sem ég hef séð og ég hef séð þau öll síðan 1986.“

„Þetta var frábært skaup frá byrjun til enda!“

„Það þarf að gera þá sem sáu um þetta skaup útlæga af landinu! Þvílík djöfulsins hörmung!“

Man ekki eftir að hafa hlegið jafn mikið af #Skaupið.

„Það var allavega ekki skotið upp mörgum flugeldum meðan, það er er allavega eitthvað.“

„Þetta var afleitt, því miður. Innihaldið með því versta sem ég man eftir en vinnslan fín og leikarar voru margir flottir. Ef ég ætti að lýsa þessu í einu orði væri það klikkhausameðvirkni.“

Gott en lélegt lokalag

Á Reddit voru skoðanir einnig skiptar en nokkuð oft kom fyrir það viðhorf að mörg atriðanna hafi verið góð en lokalagið slappt:

„Nokkuð gott heilt yfir. Pétur Jóhann ekki góður Bjarni Ben samt og lokalagið helvíti slappt.“

Annar aðili tók undir þetta:

„Var alveg fyndinn skets en fannst hann einmitt ekki ná honum á neinn máta. Lokalagið var líka einhver algjör hörmung.“

„Geggjað skaup! Mjög góðir sketsar og fast skotið sem ég kann að meta – en lokalagið sökkaði. Mjög flatt.“

„Rétt undir meðallagi, sem kannski skrifast á að maður var ekki jafn drukkinn og oft áður að horfa.“

„Það hefur verið verra.“

„Fínt. Ég hló nokkrum sinnum, fékk aulahroll nokkrum sinnum og varð pínu pirruð nokkrum sinnum. Lokalagið var bara aulahrollur og pirringur. Vonaðist eftir betra.“

„Það voru atriði þarna sem stuðuðu mig pínulítið. Atriðið þar sem konan var í vandræðum með fornöfn var mjög klaufalegt. Orðbragðið í Eurovision atriðinu var óþarflega rasískt. Og er bara í lagi að segja að Finnar séu allir alkóhólistar?“

„Nokkur lols, nokkrir aulahrollar, nokkur létt fliss úr annari nös. Ekta skaup, hefði alls ekki viljað hafa það öðruvísi.“

Að lokum má nefna að aðili sem tjáði sig sá ástæðu til að hrósa sérstaklega einum einstaklingi sem lék í Áramótaskaupinu:

„Að því sögðu sannaði Kristbjörg Kjeld af hverju hún ætti að vera í öllu sem er kvikmyndað á Íslandi. Þó svo Bankastræti Club gellan og þetta lxsxsssx lið eða hvað sem það kallar sig myndi gefa út ævigsögulega kvikmynd þá ætti Kristbjörg Kjeld að vera í aðalhlutverki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ

Gísli Rafn og Sonja selja parhúsið í Reykjanesbæ
Fókus
Fyrir 4 dögum

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra

Skellur fyrir Blake Lively og Taylor Swift – Leikarinn fær að hnýsast í einkaskilaboð þeirra
Fókus
Fyrir 5 dögum

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní

Samfélagsmiðlastjarnan rokkar í agnarsmáu eldrauðu bikiní