fbpx
Fimmtudagur 08.maí 2025
Fréttir

Kringlan komin á fulla ferð á ný

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 21. nóvember 2024 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miklar endurbætur hafa staðið yfir í Kringlunni síðustu mánuði eftir alvarlegan bruna í júní síðastliðnum. Hátt í 30 verslanir skemmdust, þó mismikið og hafa endurbætur staðið yfir síðan. Nú horfir heldur betur til betri vegar.

Verslanir hafa opnað aftur hver á fætur annarri og í dag er stór áfangi þegar sex verslanir opna og þær allra síðustu í næstu viku. Þær verslanir sem eru að opna í dag í glæsilegu nýuppgerðu verslunarrými eru Polarn O. Pyret, Icewear, Galleri 17, Kultur, Kultur Menn og GS skór.

,,Síðustu mánuðir hafa verið langir og erfiðir fyrir alla sem tengjast Kringlunni, viðskiptavini og rekstraraðila. Miðað við umfang skemmda er kraftaverk hvað mikið hefur áunnist við endurbætur og Kringlan í dag er jafnvel betri en ný,”  segir Baldvina Snælaugsdóttir, markaðsstjóri Kringlunnar í tilkynningu. 

,,Í erfiðleikum myndast  oft tækifæri og við höfum náð í samstarfi við rekstraraðila að endurskipuleggja verslanaeiningar,  fært til verslanir sem hafa lengi beðið eftir stærra rými auk fleiri hagræðinga. Ný og spennandi verslun opnar á næstu dögum en það er Húrra Reykjavík. Við erum við afar glöð með að fá þau í húsið og ekki í vafa um að viðskiptavinir verði það líka. Við í Kringlunni erum himinlifandi með þennan áfanga í dag. Kringlan er komin í jólaskrúða og  sannarlega vel í stakk búin fyrir jólagleðina á aðventunni sem nálgast óðfluga,“ segir Baldvina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Umdeilt 200 milljóna króna listaverk á að rísa í Vestmannaeyjum

Umdeilt 200 milljóna króna listaverk á að rísa í Vestmannaeyjum
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Engar eignir fundust í gjaldþrota félagi Gumma kíró – „Þetta er heil­mik­ill lær­dóm­ur“

Engar eignir fundust í gjaldþrota félagi Gumma kíró – „Þetta er heil­mik­ill lær­dóm­ur“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“

Marjorie Taylor Green gagnrýnir Trump harðlega – „Ég er pirruð“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið

„Útlínur sigurs okkar eru nú þegar augljósar“ segir ráðgjafi Pútíns – En vikan verður Rússum erfið