Grein Kristínar hefur vakið talsverða athygli en þar skrifar hún um mikilvægi innivistar. Segir hún að það veki hjá henni áhyggjur þegar hún sér hversu þétt er verið að byggja íbúðir í hennar nærumhverfi.
„Ég hef áhyggjur af því að fólk sé ekki alltaf nægilega vel upplýst um þá þætti sem mestu máli skiptir fyrir gæði innivistar. Mikilvægt er að fólk sé vel upplýst um hvernig slíkir þættir, eins og nægilegt dagsljós, útsýni, loftgæði og hljóðvist, geta haft bein áhrif á líðan og heilsu,“ segir hún í grein sinni.
Hún bendir á að íbúðarkaup séu ein af mikilvægustu fjárhagslegu ákvörðunum sem einstaklingar standa frammi fyrir. Ekki sé bara um að ræða fjárfestingu í fasteign heldur einnig í lífsgæðum og heilsu.
„Við kaup á íbúð eru nokkur algeng mistök sem geta haft langtímaáhrif á heilsu kaupenda. Hér eru helstu mistökin og ráð til að forðast þau í ljósi mikilvægis góðrar innivistar,“ segir Kristín og telur svo upp nokkur atriði.
Fyrst nefnir hún að kanna ekki loftgæði innandyra.
„Mengun innandyra getur verið falin hætta. Til dæmis er algengt að vakna með höfuðverk ef það er þungt loft í svefnherbergjum. Gott er að spyrja fasteignasala hvernig loftræstingin er í íbúðinni? Eru loftinntök og -úttök nógu góð til að tryggja ferskt loft og forðast rakasöfnun sem getur valdið myglu? Er hægt að lofta út og lofta í gegn? Eru skilyrðin fyrir utan þannig að þú getir fengið hreint loft inn í íbúðina?“
Þá nefnir hún næst vanmat á mikilvægi náttúrulegs ljóss. Bendir hún á að skortur á náttúrulegu ljósi geti haft veruleg áhrif á geðheilsu og líðan fólks.
„Þegar þú skoðar íbúðir, athugaðu stöðu glugga og hversu mikið af dagsbirtu kemst inn, athuga hvort filmur séu í glugga sem geta hindrað dagsbirtuna. Kíktu á eignina á mismunandi tímum dags til að fá skýra mynd af ljósmagni. Hvernig snýr eignin uppá sólarupprás og sólarlag? Eru gluggar á öllum hliðum íbúðar, nær dagsbirtan inn í öll rými?“
Því næst nefnir hún hljóðvist og hávaða og segir að ekki megi hunsa þessi atriði. Góð hljóðeinangrun sé lykilatriði í þægilegu heimilislífi.
„Ef íbúðin er nærri hávaðasömum svæðum, eins og umferðargötum eða iðnaðarsvæðum, getur það truflað svefn og daglegt líf. Þú ættir að kanna hljóðeinangrun og jafnvel heimsækja íbúðina á hávaðatímum til að meta áhrifin.“
Kristín nefnir svo hita- og loftrakastig en of mikill eða of lítill hiti og loftraki geta haft áhrif á heilsuna.
„Of lítill loftraki gerir loftið þurrt, sem þurrkar slímhúðir í nefi og hálsi, og gerir þig viðkvæmari fyrir veirum og bakteríum. Of lítill loftraki getur líka valdið þurrki á húð og kláða. Of mikill hiti getur gert það erfitt að sofna og komið í veg fyrir að ná djúpum svefni, eins getur of mikill kuldi truflað náttúrulega svefnhringrás.“
Hvetur Kristín fólk til að athuga hvernig hita- og rakastjórnunarkerfi virkar í íbúðinni. Á hún til dæmis við upphitun, loftræstingu og loftskipti. Þá segir hún ráðlagt að spyrja núverandi íbúa um þeirra reynslu af þessum þáttum eða fasteignasalann sem sér um söluna.
Síðast nefnir Kristín útsýni og tengingar við náttúru sem atriði sem ekki ætti að vanrækja.
„Útsýnið yfir græn svæði og tengslin við náttúruna geta haft verulega jákvæð áhrif á geðheilsu. Þegar þú velur íbúð, ekki einungis einblína á staðsetningu og stærð; taktu einnig tillit til útsýnisins og hversu nálægt hún er útivistarsvæðum. Hvernig er útsýnið frá íbúðinni? Hvernig mun hverfið þróast í náinni framtíð? Athugaðu einnig hvort fyrirhugaðar byggingar gætu truflað útsýnið og minnkað birtu í framtíðinni.“
Kristín segir að lokum að með því að hafa þessi atriði í huga þegar íbúðir eru skoðaðar sé hægt að draga úr líkum á því að gera algeng mistök við fasteignakaup sem aftur geta haft langvarandi neikvæð áhrif á heilsu og lífsgæði.