fbpx
Sunnudagur 11.maí 2025
FókusKynning

Haltu þig við trúboðann! Þetta eru hættulegustu stellingarnar

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 29. febrúar 2016 22:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið spennandi að breyta til í svefnherberginu og prófa nýjar stellingar þegar kynlíf er stundað. Það getur samt borgað sig að fara varlega því slys í svefnherberginu eru algengari en fólki grunar.

Flest slysin urðu í þessari stellingu.
Kúrekastelpan Flest slysin urðu í þessari stellingu.

Samkvæmt könnun, sem brasilískir læknar gerðu meðal karlmanna sem leitað höfðu á slysadeild eftir að hafa meitt sitt allra heilagasta meðan á kynlífi stóð, var algengasta ástæða meiðslanna ein ákveðin stelling sem nýtur nokkurra vinsælda. Hún gengur jafnan undir nafninu kúrekastelpan (e. cowgirl), en þá situr konan klofvega ofan á karlinum sem liggur á bakinu. Hundastellingin (e. doggy style) er einnig hættuleg.

Könnunin var gerð meðal karlmanna sem brákað höfðu á sér liminn meðan á kynlífi stóð. Það gerist þegar stífur limurinn er beygður of harkalega. Þá getur innra hólf limsins rofnað með tilheyrandi bólgum og sársauka.

Samkvæmt þessari sömu könnun, sem Mail Online vitnar til, er öruggasta stellingin hin svokallaða trúboðastelling, þegar karlinn liggur ofan á konunni, andlit í andlit. Könnunin náði til 44 karlmanna sem leitað höfðu á þrjú sjúkrahús í Brasilíu. Niðurstöðurnar voru birtar í tímaritinu Advances in Urology.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
26.01.2024

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7

Vetrarsýning Heklu – Frumsýnum Volkswagen Touareg og rafmagnaðan ID.7
Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea