fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Erfingjar í látlausu dánarbúi ósáttir eftir að skiptastjóri reiknaði sér 6,2 m.kr endurgjald og borgaði ekki skattinn

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. febrúar 2024 19:02

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erfingjar dánarbús kvörtuðu til úrskurðarnefndar lögmanna út af störfum skiptastjóra. Úrskurður féll í nóvember en var birtur í vikunni en þar kemur fram að lögmaðurinn var áminntur.

Um var að ræða dánarbú sem var fremur einfalt þar sem helsta eignin var ein fasteign. Erfingjar sögðu í kvörtun sinni að það hafi því verið óforsvaranlegt hversu langan tíma tók að skipta búinu, en skiptastjóri var skipaður í júlí 2020 og frumvarp til úthlutunar úr búinu var samþykkt í febrúar 2022.

Fyrir þetta hafi skiptastjóri reiknað sér endurgjald sem nam um 6,2 milljónum.

Skiptastjórinn tók til varna og benti á að það væri ekki nefndarinnar að meta störf skiptastjóra heldur dómara. Hann gerði þó grein fyrir málinu frá sinni hlið og sagði að erfingjar hafi verið erfiðir, ósammála um skipti á innbúi og svo hafi allskonar þættir tafið ferlið, svo sem Covid, gallamál eftir að fasteign seldist og fleira.

Nefndin rakti að lögum samkvæmt geti erfingjar snúði sér að þeim dómara sem skipaði skiptastjórann, með aðfinnslur sínar. Það væri því ekki á valdsviði nefndarinnar að setja út á störf lögmannsins á meðan hann var yfir skiptabúinu.

En nefndin gæti þó tekið til skoðunar háttsemi lögmannsins eftir að skiptum var lokið.

Í þessu tilviki hafði lögmaðurinn klárað skiptin á búinu og úthlutað arfi að frádregnum erfðafjárskatti. Hins vegar hafi lögmaðurinn ekki greitt skattinn fyrr en tæpu ári síðar, eftir að skatturinn hafði sent erfingjum innheimtubréf og eftir að erfingi hafði kvartað til úrskurðarnefndarinnar.

Með það í huga komst nefndin að þeirri niðurstöðu að lögmaðurinn hefði enga afsökun haft fyrir að vanrækja þetta lengi að greiða skattinn. Erfðafjárskatturinn var eign erfingjanna sem átti að greiða til hins opinbera svo fljótt sem verða mátti.

Lögmaðurinn hafi látið að því liggja í svörum til nefndarinnar að hann hefði greitt skattinn áður en kvörtunin barst nefndinni, þetta reyndist ósatt. Þar með hafi lögmaðurinn villt fyrir nefndinni og vanrækt skyldur sínar samkvæmt siðareglum lögmanna og lögmannalögum við skil á vörslufjár auk þess að veita nefndinni rangar upplýsingar um málið í kjölfarið. Með því hafi lögmaðurinn sýnt af sér ámælisverða háttsemi og ekki yrði komist hjá því að veita áminningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar

Herkastalinn seldur á 865 milljónir – Bætist í myndarlegt og sístækkandi eignasafn Bergeyjar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar

Vilhjálmur segir ekkert bóla á þessu loforði ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“