fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fókus

Þau hættu saman á árinu 2023

Fókus
Mánudaginn 25. desember 2023 13:00

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástin kviknar og ástin slokknar, í tilfelli einstaklinganna hér að neðan gerðist það síðarnefnda á árinu og var til umfjöllunar í fjölmiðlum landsins.

Fókus óskar þeim velfarnaðar á nýju ári.

Sveinn Andri.

Sveinn Andri og Anna María

Stjörnulögfræðingurinn Sveinn Andri Sveinsson og læknirinn Anna María Hákonardóttir hættu saman í haust eftir stutt samband. 25 ára aldursmunur er á fyrrverandi parinu.

Hún kláraði læknisfræði í Ungverjalandi árið 2017. Sveinn Andri hefur um margra ára skeið verið sá lögfræðingur sem er hvað mest áberandi í opinberri umræðu.

Diljá og Daníel hætt saman - DV
Diljá Pétursdóttir. Mynd/Getty

Diljá og Daníel

Eurovision-stjarnan Diljá Pétursdóttir og rapparinn og sjónvarpsstjarnan Daníel Óskar Jóhannesson hættu saman í maí.

Diljá fangaði hjörtu landsmanna þegar hún söng lagið Power fyrir hönd Íslands í Eurovision fyrr á árinu. Margir landsmenn kannast við Daníel úr Skólahreysti á RÚV, hann er annar af kynnum keppninnar.

Mynd/Instagram

Kolla Björns og Árni

Leiðir skildu hjá leiðsögu- og fjölmiðlakonunni Kolbrúnu Björnsdóttur, betur þekkt sem Kolla Björns, og rithöfundarins Árna Árnasonar.

Kolbrún var viðloðin fjölmiðla í mörg ár og landsmenn muna flestir eftir henni í Bítinu á Bylgjunni. En fyrir nokkrum árum sneri hún sér að leiðsögubransanum og starfar nú sem leiðsögumaður fyrir Fjallafélagið.

Árni starfaði í tvo áratugi við hin ýmsu störf í markaðs- og auglýsingageiranum auk þess sem hann kenndi markaðsfræði við HR, HA og HÍ í tíu ár.  Hann gaf út sína fyrstu barnabók árið 2019 og fyrstu skáldsögu sína fyrir fullorðna árið 2022.

Sigurður Orri og Kamilla.

Kamilla og Sigurður

Kamilla Einarsdóttir, rithöfundur og bókavörður, litaði hárið sitt bleikt til að díla við sambandsslit hennar og Sigurðar Orra Kristjánssonar, fréttamanns á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Kamilla hefur gefið út tvær bækur, Kópavogskróníkan árið 2018 og Tilfinningar eru fyrir aumingja árið 2021. Sú seinni var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og leikrit var gert eftir Kópavogskróníkunni, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu og fór Ilmur Kristjánsdóttir með aðalhlutverkið.

Sigurður er annar þáttastjórnenda útvarpsþáttarins Boltinn lýgur ekki á X977 og sjónvarpsþáttarins Lögmál leiksson á Stöð 2.

Mynd/Instagram

Nökkvi Fjalar og Embla Wigum

Fyrrverandi ofurparið var búsett saman í Lundúnum þar sem þau voru bæði að elta drauminn, hann sem athafnamaður og frumkvöðull og hún sem samfélagsmiðlastjarna.

Þau hættu saman í haust eftir eins og hálfs árs samband. Nökkvi var annar eigandi umboðsskrifstofunnar Swipe Medie, þar sem Embla var á skrá. Hann kvaddi fyrirtækið í mars á þessu ári og stofnaði nýtt fyrirtæki, Lydia.

Embla Wigum er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna okkar Íslendinga, hún er með yfir 2,5 milljón fylgjendur á TikTok og rúmlega 200 þúsund fylgjendur á Instagram.

Bríet – Mynd/Stefán

Bríet og Rubin Pollock

Söngkonan Bríet Ísis Elfar og tónlistarmaðurinn Rubin Pollock hættu saman eftir um þriggja ára samband.

Bríet er ein vinsælasta söngkona landsins og hefur einnig slegið í gegn sem dómari í Idol. Rubin er gítarleikari Kaleo.

Manuela Ósk.

Manuela og Eiður

Fyrrverandi fegurðardrottningin, áhrifavaldurinn og athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir og kvikmyndaframleiðandinn Eiður Birgisson hættu saman í júní eftir þriggja ára samband, þau byrjuðu aftur saman um stutt skeið en ákváðu síðan að fara í sitthvora áttina.

Manuela er framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Ísland. Hún rekur einnig heilsulindina Even Labs.

Berglind Festival og Þórður kannast ekki við sambandslitin - DV
Þórður og Berglind.

Berglind Festival og Þórður

Í byrjun maí birti Vísir frétt um að sjónvarpsstjarnan Berglind Pétursdóttir, betur þekkt sem Berglind Festival, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur, væru hætt saman. Þau sögðust ekki kannast við þær fregnir og sögðu að þau væru vissulega enn saman. Þau birtu mynd af sér á veitingastað og gerðu grín að málinu.

Þau hættu saman nokkrum vikum seinna.

Sjónvarpskonan er vel kunnug landsmönnum en hún hefur slegið í gegn með hress og skemmtileg innslög í Vikunni með Gísla Marteini á RÚV. Þórður er hagfræðingur, blaðamaður og varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Ómar R. Valdimarsson.

Ómar og Margrét

Ómar R. Valdimarsson lögfræðingur og Margrét Ýr Ingimarsdóttir, kennari og eigandi Hugmyndabankans, skildu í vor. Þau voru saman í sautján ár og eiga tvö börn.

Ómar hefur verið þekktur vegna starfa sinna um árabil, hann kemur reglulega fram í fjölmiðlum að tjá sig um ýmis mál. Eins og varðandi mál Báru uppljóstrara og feitt fólk. Hann rekur Lögmannstofu Valdimarsson/ESJA Legal Ehf.

Inga Lind og Árni.

Inga Lind og Árni

Leiðir skildu hjá Ingu Lind Karlsdóttur, framleiðanda, og Árna Haukssyni, fjárfesti, á árinu.

Inga Lind er einn af eigendum Skot Productions. Þar áður starfaði hún í fjölmiðlum en þau kynntust þegar hún var blaðamaður hjá DV og Árni var fjármálastjóri fjölmiðilsins.

Segist hafa náð botninum þegar yngri sonurinn lagði á borðið og setti þrjú vatnsglös og eitt bjórglas fyrir mömmu - DV
Bergrún Íris Sævarsdóttir. Mynd: Valli

Bergrún Íris og Andri

Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og myndskreytir, og Andri Ómarsson, verkefnisstjóri, skildu í ár. Þau eiga saman tvö börn.

Í nóvember steig hún fram og sagðist vera alkóhólisti í bata

Kristín og Katrín Mynd: Facebook

Kristín Eysteins og Katrín

Katrín Oddsdóttir, lögmaður og baráttukona fyrir réttindum fatlaðs fólks og flóttamanna, og Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, skildu eftir sextán ára hjónaband. Þær eiga saman tvö börn.

Báðar eru þær landsþekktar fyrir störf sín og hafa verið áberandi í samfélagsumræðu til margra ára.

Kristín var leikstjóri Borgarleikhússins árin 2014-2020, í ágúst í fyrra var hún ráðin í stöðu prófessors við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hún vinnur nú að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Katrín starfar fyrir Öryrkjabandalagið og sinnir  kennslu við Háskólann í Reykjavík.

Inga og Helgi.

Helgi Hrafn og Inga Auðbjörg

Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, og Inga Auðbjörg Straumland, formaður Siðmenntar, skildu í byrjun árs. Þau giftust í júlí 2016 en bónorð Ingu til Hrafns vakti mikla athygli á sínum tíma.

Þau eiga saman son fæddan árið 2018.

Sigmar og Júlíana.

Sigmar og Júlíana

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar fyrrverandi fjölmiðlamaður, og Júlíana Einarsdóttir, mannauðssérfræðingur, skildu eftir tveggja ára hjónaband. Þau byrjuðu saman árið 2012 og trúlofuðu sig árið 2015. Aldursmunur þeirra vakti mikla athygli þegar þau byrjuðu saman en Sigmar er sautján árum eldri en Júlíana.

Óttar Pálsson.

Óttar Pálsson og Anna Rut

Óttar Pálsson, lögmaður og einn af eigendum Logos lögmannsstofunnar, og Anna Rut Þráinsdóttir, viðskiptafræðingur, fóru í sitthvora áttina í haust eftir margra ára samband. Þau eiga þrjú börn.

Fregnir af skilnaði þeirra bárust á svipuðum tíma og Óttar var borinn þeim sökum að ráðast á verslunareiganda þann 5. október síðastliðinn.

Sjá einnig: Telja að Óttar eigi von á kæru fyrir meinta líkamsárás

Aníta Briem. Mynd/Anton Brink

Aníta Briem og Dean Paraskveopoulos

Aníta Briem leikkona og gríski leikstjórinn og leikarinn Dean Paraskevopoulos leikstjóri hættu saman í sumar.

Þau bjuggu í Los Angeles ásamt dóttur sinni þar til þau fluttu til Íslands árið 2020.

Gunnar Smári og Alda Lóa

Gunnar Smári og Alda Lóa

Þúsundþjalasmiðurinn og kvikmyndagerðakonan Alda Lóa Leifsdóttir greindi frá því í viðtali við Vísi í september að hún og sósíalistaleiðtoginn Gunnar Smári Egilsson væru skilin eftir langt hjónaband.

Mynd/Instagram @kolbrunpalina

Kolbrún Pálína og Jón Haukur

Kolbrún Pálína Helgadóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi fegurðardrottning, og Jón Haukur Baldvinsson, verkefnastjóri hjá SSP Iceland, hættu saman eftir fimm ára samband.

Kolbrún var valin Ungfrú Ísland.is árið 2001 og á farsælan fjölmiðlaferil að baki. Hún var um tíma ritstjóri hjá Nýtt Líf og fylgitímariti Fréttablaðsins, Lífið. Hún hefur einnig gert góða hluti sem makaðsráðgjafi, fyrir nokkrum árum var hún verkefnastjóri markaðsdeildar Árvakurs en starfar nú hjá markaðsdeild Icepharma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Í gær

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“

Lætur Ellen DeGeneres heyra það: „Þetta gerði mig svo reiða“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“

Átakanleg frásögn Evu Marýjar: „Ég svaf með hníf og piparúða til að verja mig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi