fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Skammir í hattinn og 1,5 m.kr sekt fyrir að auglýsa „léttöl“ með áfengisprósentunni 5,6 og „léttöl“ sem er ekki til

Ritstjórn DV
Mánudaginn 18. desember 2023 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlanefnd hefur sektað Sýn um 1,5 milljón fyrir ítrekuð brot gegn lögum um fjölmiðla. Málið varðar auglýsingu á áfengum Víking bjór sem hafi ranglega verið merktur sem léttöl.

Kvörtun barst til Fjölmiðlanefndar í mars þar sem kvartandi tilkynnti um auglýsingu frá Víking Brugghúsi fyrir vörutegundina Víking Gylltur. Neðst í auglýsingu kom fram að um léttöl væri að ræða en samhliða var tekið fram að Víking Gylltur hafi hlotið gullviðurkenningu á European Beer Challange. Sú viðurkenning hafi ekki verið veitt fyrir léttöl, heldur fyrir áfengan bjór. Fjölmiðlanefnd veitti því eins athygli að á sama tíma birtust á Vísi viðskiptaboð fyrir drykkina Víking Lite og Víking Lager sem báðar hafi verið auðkenndar sem léttöl. Samkvæmt svörum Coca-Cola á Íslandi, sem framleiðir Víking, þá er aðeins framleidd ein tegund af Víking Lite léttöli og það er fyrir bragðtegundina Lite Lime. Téð auglýsing hafi ekki fjallað um Lite Lime.

Ekki séns að krefja fjölmiðla um að sannreyna auglýsingar

Fjölmiðlanefnd gaf Sýn kost á að svara fyrir sig og var það afstaða fjölmiðlaveitunnar að ekki sé hægt að setja þær kröfur á fjölmiðla að kanna sjálfstætt réttmæti auglýsinga viðskiptavina sinna. Hafi Sýn verið í góðri trú um að hér væri um léttöl að ræða og væri kvörtun því beint að röngum aðila. Það hljóti að vera framleiðandi drukksins sem hafi gerst brotlegur fremur en miðillinn sem miðlaði auglýsingunni. Hafnaði Sýn þeirri lögskýringu Fjölmiðlanefndar að fjölmiðlalög leggi framangreinda skildu á herðar fjölmiðla. Tilgangur ábyrgðarreglna í lögum um fjölmiðla sé sá að fjölmiðlaveitur verði ekki gerðar ábyrgar fyrir efni viðskiptaboða, enda lúti þau ekki ritstjórn. Það sé mikilvægt að hafa í huga að auglýsingarnar voru auðkenndar sem léttöl en ekki áfengi og var Sýn í góðri trú um réttmæti fullyrðingarinnar.

Ógerningur sé fyrir fjölmiðlaveitu að sannreyna hverja staðhæfingu í auglýsingu. Fjölmiðaveitur þurfi að geta verið í góðri trú um að innihald auglýsinga sem kaupandi setur nafn sitt við sé í samræmi við lög. Að öðrum kosti væri komið umhverfi sem einkareknum fjölmiðlum væri ógjörningur að starfa í og samkeppnisstaða þeirra verulega skert gagnvart Ríkisútvarpinu. Skýring Fjölmiðlanefndar væri til þess fallin að veikja samkeppnisstöðu fjölmiðla sem á sama tíma eru að takast á við aðstæður þar sem stöðugt flóð sé af viðskiptaboðum, þar með talið áfengisauglýsingum, frá erlendum streymisveitum.

Sýn taldi eins að ekki væru skilyrði til að beita íþyngjandi viðurlögum í málinu. Hér hafi neytendur verið hvattir til að kaupa léttöl og vekja athygli á óáfengum vörum Víkings. Með því að beita Sýn sektum væri verið að takmarka tjáningarfrelsi þeirra, en slík takmörk stuðli ekki að markmiði laga um bann við áfengisauglýsingum, þar sem hér hafi ekki verið hvatt til áfengisneyslu. Í það minnsta gæti ekki talist um alvarlegt brot að ræða.

Víst séns að krefja fjölmiðla um að fylgja lögum

Fjölmiðlanefnd rakti að það væri engum vafa undirorpið að fjölmiðaveitur bera ábyrgð á þeim auglýsingum sem þær birta, þá að þær séu í samræmi við lög um fjölmiðla. Í téðum auglýsingum voru birtar myndir af áfengum bjór. Umbúðirnar af Víking hafi verið með svart letur og eins var tekið fram að áfengisinnihald sé 5,6 prósent. Óáfengi drykkurinn sé í öðrum umbúðum og með innihaldið 2,25 prósent. Strax þarna sé ljóst að áfengur bjór var vissulega auglýstur þó svo að textanum „léttöl“ hafi verið splæst við. Með því að vísa til verðlauna sem drykkurinn, sá áfengi, hafði hlotið hafi enn heldur verið ljóst að hér var verið að auglýsa áfengan bjór.

Hvað varðar Víking Lite þá hafi birst mynd af áfengum bjór, enda ekki til óáfeng útgáfa af drykknum. Eins hafi í nokkrum útgáfum auglýsingarinnar sést að á umbúðum stóð áfengisprósentan 4,4 prósent.

Sýn reyndi aftur að mótmæla og sögðu ekki hægt að leggja þessa skyldu á fjölmiðla að sannreyna efni auglýsinga. Það væri ógerningur að sanna hverja staðhæfingu. Fjölmiðlanefnd tók fram að ekki sé gerð krafa um að allar staðhæfingar séu sannreyndar, heldur bara þær sem gætu brotið gegn lögum um fjölmiðla, svo sem í þessu tilviki. Aðgæsluskylda sé eðlilega ríkari þegar um er að ræða viðskiptaboð fyrir vöru, í þessu tilviki léttöl, sem er nátengd vörutegund, í þessu tilviki áfengur bjór, sem sé bannað að auglýsa í fjölmiðlum á Íslandi. Það ætti ekki að vera flókið fyrir fjölmiðla að tryggja að óáfenga vara sé vissulega til og að auglýsingin fjalli í raun og veru um hana.

Sýn hafi því brotið gegn lögum, og það ekki í fyrsta sinn. Hæfileg sekt væri því 1,5 milljón en við ákvörðun var tekið mið af því að Sýn hafi margítrekað brotið gegn banni við áfengisauglýsingum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot

Íris Helga ákærð í yfir 60 ákæruliðum – Umsáturseinelti gegn þremur mönnum og ættingjum þeirra, ásakanir um barnaníð og kynferðisbrot
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast

Sverrir Davíð og Fríða Björk gengu hraðast
Fréttir
Í gær

Þórður Snær varar kjósendur við: Þetta gerist strax ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í Reykjavík

Þórður Snær varar kjósendur við: Þetta gerist strax ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í Reykjavík
Fréttir
Í gær

Var í eigin rekstri á meðan hann var á atvinnuleysisbótum

Var í eigin rekstri á meðan hann var á atvinnuleysisbótum