fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Flugumferðarstjórar sagðir vilja fá 25% launahækkun

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. desember 2023 06:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugumferðarstjórar eru sagðir krefjast 25% launahækkunar í kjaradeilu sinni við Isavia. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og kveðst hafa heimildir fyrir þessu.

Greint var frá því í gær að heildarlaun flugumferðarstjóra á síðasta ári, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, hafi numið 1.584 þúsund krónum að meðaltali á mánuði. Er þá átt við laun fyrir umsaminn dagvinnutíma og vaktavinnu og yfirvinnu.

Morgunblaðið hefur eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að á meðan viðræður eru í gangi sé von. „Það ber enn talsvert á milli,“ segir hún.

Hvorki hún né Arnar Hjálmsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, vildu staðfesta kröfu um 25% launahækkun.

Vinnustöðvun flugumferðarstjóra í gærmorgun hafði áhrif á ferðaáætlanir þúsunda farþega. Önnur vinnustöðvun hefur verið boðuð í fyrramálið og segir Morgunblaðið að hún muni hafa áhrif á um 8.300 farþega Icelandair og um 20 flugferðir Play.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara
Fréttir
Í gær

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rússar hafa opinberað nýjar upplýsingar um fyrstu árásina á Kerch-brúna – Myndband

Rússar hafa opinberað nýjar upplýsingar um fyrstu árásina á Kerch-brúna – Myndband
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Þó það sé ekki al­veg hægt að vera viss um allt í þessu þá er þetta bara staðan“

„Þó það sé ekki al­veg hægt að vera viss um allt í þessu þá er þetta bara staðan“