fbpx
Föstudagur 16.maí 2025
Fréttir

Ofurvopnið sem getur breytt öllu í stríðinu í Úkraínu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. október 2023 04:31

ATACMS skotið á loft. Mynd:US Army

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með mikilli leynd sendu Bandaríkin Úkraínumönnum eitt fullkomnasta vopn sitt nýlega. Þetta eru flugskeyti af gerðinni ATACMS. Þessi flugskeyti geta valdið Rússum miklum vanda á vígvellinum og fengu þeir að kenna á þeim aðfaranótt þriðjudags.

Þá skutu Úkraínumenn ATACMS-flugskeytum á tvo rússneska herflugvelli. Segja Úkraínumenn að þessi langdrægu flugskeyti hafi eyðilagt níu rússneskar árásarþyrlur, loftvarnarkerfi og skotfærageymslu.

„ATACMS hefur sýnt hvers það er megnugt,“ sagði hæstánægður Volodymyr Zelenskyy, forseti, í kjölfar árásanna. Úkraínski herinn birti myndband á X sem sýnir þegar flugskeytunum var skotið á loft.

Rússnesk yfirvöld sögðust, eins og þau gera oft, hafa skotið flugskeytin niður áður en þau hæfðu skotmörk sín. Þessu vísaði þekktur rússneskur herbloggari á bug á þriðjudaginn og sagðist brugðið yfir þeim skaða sem flugskeytin ollu. „Þetta er ein versta árásin sem við höfum orðið fyrir í hernaðaraðgerðinni í Úkraínu, hugsanlega sú versta,“ skrifaði bloggarinn „Fighterbomber“ á Telegram.

Flugskeytin draga rúmlega 160 km og eru mjög nákvæm.

Drægi þeirra skiptir miklu máli í stríðinu í Úkraínu og getur haft mikil áhrif á rússneska herinn. Einn helsti ráðgjafi Zelenskyy skrifaði á X að nýr kafli sé hafinn í stríðinu. Nú hafi rússneskar hersveitir, sem eru á alþjóðlega viðurkenndu úkraínsku landsvæði, ekki lengur neina örugga staði til að vera á.

Úkraínumenn geta nú hæft skotmörk langt inni á Krímskaga. Þetta neyðir Rússa til að staðsetja skotfærageymslur, flugvélar og árásarþyrlur enn lengra frá víglínunni og það veldur enn meiri vandræðum við birgðaflutninga.

Árásarþyrlurnar geta ekki athafnað sig eins frjálslega og fram að þessu ef þær verða færðar fjær vígvellinum. Hermenn á jörðu niðri verða að treysta á birgðaflutninga um mörg hundruð kílómetra leið til að fá mat, eldsneyti og skotfæri. Skortur á því síðastnefnda getur verið uppskriftin að ósigri í stríði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum

Kona réðst á pizzasendil og stal af honum símanum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Í gær

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box

Hópslagsmál á Suðurnesjum – Kýldi konu í andlitið sem æfði með honum box
Fréttir
Í gær

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“

Sérfræðingur varar við – „Pútín vill ekki frið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar