fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Noel var mjög hissa þegar hann endaði á Siglufirði: „Lenti strax í ævintýri á Íslandi“

Grunaði að eitthvað væri að á leiðinni en ákvað að fylgja GPS-tækinu áfram – „Ég frétti það í morgun að ég væri orðinn frægur á Íslandi“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. febrúar 2016 10:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Noel Santillan, frá New Jersey, var heldur betur hissa þegar hann endaði á Siglufirði í gær en hann ætlaði að aka frá Keflavíkurflugvelli á hótel í miðbæ Reykjavíkur. Noel segir að hann hafi grunað að hann hafi gert mistök þegar hann var kominn um hálftíma akstur frá Reykjavík en ákvað að treysta tækinu.

„Þetta voru ansi stór mistök en ég fylgdi bara leiðbeiningunum. Ég ætlaði að fara beint til Reykjavíkur og var því mjög brugðið þegar ég áttaði mig á því að ég væri kominn til Siglufjarðar.“

Segir magnað hann sé orðinn frægur á Íslandi.
Noel. Segir magnað hann sé orðinn frægur á Íslandi.

Noel segir í samtali við DV að hann hafi ekið í rúmar fimm klukkustundir þangað til að GPS-tækið sagði honum að hann væri kominn á réttan áfangastað. Hann ákvað að dingla dyrabjöllunni og spyrja hvort að hann væri ekki örugglega á réttum stað.

Sjá einnig: Ferðamaður átti bókað hótelherbergi á Laugavegi í Reykjavík en endaði á Laugarvegi á Siglufirði

„Tækið sagði að ég væri kominn. Ég vonaði svo innilega að um réttan stað væri að ræða þar sem ég var orðinn verulega þreyttur eftir aksturinn. Þá kom Sirrý til dyra og sagði mér að ég væri alls ekki á réttum stað. Hún sagði mér að ég væri núna í nyrsta bæ á Íslandi.“

Noel segir að Sirrý hafi síðan aðstoða hann við að fá gistingu á Sigló Hótel og að hún hefði haft samband við Hótel Frón, þar sem hann átti bókað herbergi í Reykjavík, og útskýrt fyrir þeim misskilninginn.

„Ég vill fá að þakka Sirrý innilega fyrir aðstoðina. Ég var fremur ringlaður á þessum tíma og hún hjálpaði mér mikið.“

Noel fékk herbergi á Sigló Hótel og segir hann dvölina þar hafa verið afar góða. Hann segir að þrátt fyrir mistökin sé ferð hans til Íslands vel heppnuð hingað til.

„Ég kom hingað til að lenda í ævintýri og nánast um leið og ég steig úr flugvélinni var ég lentur í mesta ævintýri lífs míns.“

Starfsmenn hótelsins ræddu við Noel í morgun og tjáðu honum að hann væri orðinn landsfrægur á Íslandi.

„Ég frétti það í morgun að ég væri orðinn frægur á Íslandi. Ég hef aldrei verið frægur áður. Þetta er alveg magnað,“ segir Noel og bætir við að forsvarsmenn Sigló Hótel hafi boðið honum aðra nótt, honum að kostnaðarlausu.

„Ég fer aftur til Bandaríkjanna 6. febrúar og ætlaði því að keyra aftur til Reykjavíkur í dag. Ég er hins vegar mjög feginn að þurfa ekki að keyra alla þessa leið aftur í dag. Það er ofboðslega fallegt hérna á Siglufirði svo að ég tók auka nóttinni fagnandi.“

„Allir á Íslandi hafa verið virkilega hjálpsamir og góðir við mig. Ég elska Ísland og harðfiskinn sem ég smakkaði í gær. Ég mun alveg örugglega koma aftur,“ segir Noel í samtali við DV.

Sæunn Tamar Ásgeirsdóttir markaðsfulltrúi og starfsmaður hjá Sigló Hótel birti mynd af sér með Noel á Sigló Hótel. Sæunn segir:

„Vinur minn sem ætlaði á Laugaveg í Reykjavík en endaði á Laugarvegi á Siglufirði. Passa uppá hann á Sigló hotel.“

Sjá einnig: Hótel Frón skráð á Laugarvegi á erlendum bókunarsíðum

Noel er hæstánægður með dvölina á Siglufirði og ætlar að eyða annarri nótt þar.
Sigló Hótel. Noel er hæstánægður með dvölina á Siglufirði og ætlar að eyða annarri nótt þar.

Mynd: Aðsend mynd

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Í gær

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Í gær

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Í gær

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“