
Karlmaður á þrítugsaldri, Óskar Andri Jónsson, hefur verið dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás sem átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Moe’s Bar í Breiðholti í október á síðasta ári. Var Óskar eins dæmdur til að greiða þolanda árásarinnar 5 milljónir í miskabætur.
Snorri Sturluson, verjandi Óskars, segir í samtali við DV að hann eigi eftir að fara yfir forsendur dómsins og taka afstöðu um næstu skref.
Sjá einnig: Hryllileg árás við Moe´s Bar grill í Breiðholti – Grunaður um að sparka manni niður 23 steintröppur
Árásin átti sér stað aðfaranótt laugardagsins 29. október. Barst þá lögreglu beiðni um aðstoð og eins var óskað eftir sjúkraflutningamönnum. Þegar lögregla kom á staðinn lá karlmaður meðvitundarlaus fyrir neðan tröppur sem eru fyrir utan veitingastaðinn. Maðurinn hvar með áberandi skurð á höfði sem blæddi úr. Hafði manninum verið komið fyrir í læstri hliðarlegu og voru gestir staðarins að hlúa að honum. Maðurinn var með sterkan púls en andaði óreglulega. Samkvæmt atvikalýsingu í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem var kveðinn upp í dag, og DV hefur undir höndum, var mikil ölvun á svæðinu og „ekkert vitrænt að hafa upp úr fólki á staðnum annað en að brotaþoli hefði sennilega dottið niður tröppurnar og fólk komið honum til aðstoðar“.
Maðurinn varí kjölfarið fluttur þungt haldinn á gjörgæslu. Daginn eftir barst lögreglu tilkynning frá veitingastaðnum um að líklega hefði manninum verið sparkað niður tröppurnar og við skoðun á upptökum úr öryggismyndavélum og samtali við rekstraraðila og starfsmenn kom upp rökstuddur grunur að Óskar Andri væri gerandinn. Var hann í kjölfarið handtekinn.
Óskar bar fyrir sig minnisleysi og kannaðist ekki við sjálfan sig á upptökum.
Árásarþoli slasaðist alvarlega við fallið. Hann var settur í öndunarvél á gjörgæslu, og hafði fengið blæðingu og bólgu í heila sem og höfuðkúpubrot. Eftir útskrift af gjörgæslu var hann sendur á heila- og taugaskurðdeild og þurfti þar fulla umönnun, en hann gat ekki nærst sjálfur og var með lömunareinkenni hægra megin. Honum fór þó hægt fram og gat loks gengið og talað aftur, og við tók endurhæfing á endurhæfingardeild og ekki fyllilega ljóst hvaða áhrif höfuðáverkinn muni hafa á líf hans til frambúðar, en ljóst er að áhrifin eru þó nokkur og þar á meðan hugræn skerðing.
Í ljósi alvarleika áverka árásarþola var Óskar kærður fyrir tilraun til manndráps. Fyrir dómi greindi hann frá því að atvikið væri að rifjast upp fyrir honum og hafi hann ekki ætlað að meiða brotaþola heldur koma honum burt. Sparkið hefði ekki verið fast, en hálka hafi verið úti og brotaþoli ölvaður. Brotaþoli hafi verið að áreita hann og hefði Óskar misst stjórn á sér eftir að brotaþoli hafði ekki orðið við ítrekuðum beiðnum hans um að láta hann í friði. Hann hefði hugsað til brotaþola daglega síðan og bæði fyrir honum.
Þó nokkur vitni voru leidd fram í málinu en þau greindu frá því að hafa séð brotaþola falla, en ekki hvernig það kom til. Hálka hafi verið á svæðinu, en starfsmaður Moe’s Bar sagði að þó hefði ekki verið hálka í tröppunum og þar að auki væru starfsmenn duglegir að salta. Í aðdraganda atviksins hefði brotaþola verið vísað út af veitingastaðnum þar sem hann hefði verið drukkinn og uppáþrengjandi við gesti sem hafi kvartað undan honum. Hann hafi verið ýtinn, reynt að bjóða fólki í glas, en þó ekki verið ókurteis.
Óskar gekkst við háttsemi sinni undir rekstri málsins en taldi þó að atvikið ætti frekar að heimfæra undir ákvæði hegningarlaga sem fjallar um meiriháttar líkamsárás. Samkvæmt frásögn vitna hafi árásarþoli fallið fyrst niður hluta stigans, þar hafnað á palli, reynt að standa upp og við það fallið aftur fyrir sig og lent harkalega á hnakkanum. Dómari taldi ekkert fram hafa komið í málinu sem benti til að Óskar hefði haft ásetning til að bana árásarþola. Ljóst sé þó að sú háttsemi að sparka manni niður steinsteyptar tröppur sé mjög hættuleg og til þess fallin að valda skaða. Þó verði ekki talið að ráð mætti gera fyrir því að bani hlytist af slíku falli. Taldi dómari því réttara að heimfæra háttsemina undir ákvæði hegningarlaga sem fjallar um meiriháttar líkamsárás þar sem stórfellt líkams- eða heilsutjón hefur orðið, eða brot sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar sem notuð var. Til samanburðar má nefna að refsiramminn fyrir alvarlega líkamsárás er jafnan fangelsi allt að þremur árum, en þegar slík árás veldur fyrrgreindum afleiðingum eða framkvæmd með sérstaklega hættulegri aðferð, þá getur það varðað fangelsi allt að 16 árum.
Taldi dómari hæfilega refsingu vera 3 ára óskilorðsbundið fangelsi en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem Óskar var úrskurðaður í 30. október til 11. nóvember og svo aftur frá 15. nóvember.
Árásarþoli fór fram á skaðabætur að fjárhæð rúmum 127 milljónum og 50 milljónir í miskabætur. Dómari leit þó til þess að ekki hefur farið fram örorkumat og ekki tímabært að meta varanlegt tjón árásarþola fyrr en ár er liðið frá atvikinu. Því var skaðabótakröfu vísað frá dómi. Taldi dómari hæfilegar miskabætur, í ljósi alvarleika árásarinnar og varanlegra afleiðinga, vera 5 milljónir.
Óskar var þar að auki dæmdur til að greiða um 4 milljónir í lögmannskostnað, útlagðan kostnað, sakarkostnað og þóknun til réttargæslumanns. Eins og fram kemur hér að ofar er verjandi Óskars, Snorri Sturluson, að fara yfir forsendur dómsins og mun svo taka afstöðu varðandi næstu skref.