fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Fréttir

Musk biður Harald afsökunar – Segir hann íhuga að snúa aftur til starfa hjá Twitter

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. mars 2023 00:39

Elon Musk. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elon Musk, eigandi Twitter og ríkasti maður heims, hefur beðið Harald Inga Þorleifsson afsökunar í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum. Segist hann hafi misskilið stöðu Haraldar hjá fyrirtækinu. Það hafi byggst á sögum sem hann hafi heyrt en voru ekki sannar og öðrum sem að skipta litla máli.

Svo virðist sem ljósmyndarinn Daniel Houghton hafi skrifað færslu þar sem að hann lofsamaði Harald og sagði hann afar vinnusaman og með hæfileika og manngæsku á heimsmælikvarða. Sagði Houghton að Haraldur væri einhver sem allir vilji hafa með sér í liði og að það hlyti að hafa verið á misskilningi byggt að hann hafi ekki unnið handtak hjá Twitter eins og Musk hélt fram fyrr í dag.

Sjá einnig: Lestu einlægt svarbréf Haraldar við fötlunarfordómum Elon Musk – Skýtur föstum en duldum skotum á auðkýfinginn

Musk skrifar athugasemd við færslu Houghton og greinir frá því að vegna hennar hafi hann hringt myndsímtal í Harald til þess að reyna að átta sig á hvað væri satt og logið í málinu. Segir auðkýfingurinn að það sé löng saga að segja frá því símtali en að niðurstaðan sé sú að betra sé að ræða beint við fólk en eiga samskipti í gegnum Twitter.

Farsæll endir á sögulegu netrifrildi

Eins og alþjóð veit hófst sögulegt netfrildi milli Haraldar og Elon Musk fyrir rúmum sólarhring þegar íslenski frumkvöðullinn óskaði eftir upplýsingum um hvort að hann hefði verið rekinn frá Twitter eða ekki. Það náði eyrum Musk sem hló að starfslýsingu Haraldar og sakaði hann svo um í kjölfarið að hafa ekki unnið handtak meðan hann starfaði hjá Twitter og hæddist meðal annars að því að hann hafi skýlt sér á bak við líkamlega fötlun sína.

Málið vakti gríðarlega athygli á Twitter og ekki síður hjá helstu fjölmiðlum heims. Ljóst er að málið er að fá farsælan endi og nú liggur Haraldur undir feld, að sögn auðkýfingsins, um hvort að hann muni hreinlega snúa aftur til starfa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“