fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Jeppi fyrir rafmagnsöldina – Polestar 3 frumsýndur 12. október

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. september 2022 14:40

Polestar 3 er kraftmikill, hönnunardrifinn rafknúinn jeppi sem höfðar til skilningarvitanna með áberandi lögun og framúrskarandi aksturseiginleika.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

GAUTABORG, SVÍÞJÓÐ – 28 september 2022.

Polestar (Nasdaq: PSNY) frumsýnir sinn fyrsta jeppa, Polestar 3, á frumsýningarviðburði þann 12. október 2022 í Kaupmannahöfn í Danmörku.

Polestar 3 er kraftmikill, hönnunardrifinn rafknúinn jeppi sem höfðar til skilningarvitanna með áberandi lögun og framúrskarandi aksturseiginleika. Hann er byggður á nýjum alrafmögnuðum tæknigrunni sem þróaður er af og deilt með Volvo Cars og státar af því nýjasta í hátækni – eins og miðlægri kjarnatölvu frá NVIDIA og langan lista af háþróuðum öryggiskerfum frá Volvo Cars og leiðandi birgjum iðnaðarins, þar á meðal Zenseact, Luminar og Smart Eye.

„Við urðum að spyrja okkur: „Hvernig ætti nútíma jeppi að líta út?” Polestar 3 skilgreinir jeppann fyrir rafmagnsöldina og við hönnun hans horfðum við á nokkur grundvallaratriði: hlutföll, stöðu og loftaflfræði,“ segir Thomas. Ingenlath, forstjóri Polestar.

Aksturseiginleikar eru lykilatriði fyrir Polestar, með áherslu á meira en eingöngu beinlínuhröðun. Í upphafi eru allar útgáfur fjórhjóladrifnar, tvískipt aflrás með rafdrifnu “torque vectoring” sem tengt er aftari rafmótor með tvíkúplingu. Staðalbúnaður er aðlagandi fjöðrunarkerfi með tveggja hólfa loftfjöðrun og sívirkum dempurum, sem gerir Polestar 3 kleift að skipta á milli þæginda og stífrar fjöðrunar og aðlaga demparana að aðstæðum á vegum á tveggja millisekúndna fresti (500 Hz).

Thomas Ingenlath heldur áfram: „Það er þessi skjóti eiginleiki til að breytast úr þægilegum “krúser” í beittan, lipran akstursbíl á augnabliki sem gerir Polestar 3 sérstakan sem rafknúinn akstursjeppa. Hann nýtur líka góðs af lágum þyngdarpunkti og miklu hjólabili fyrir fullkominn stöðugleika og spennandi tilfinningu undir stýri.”

Performance pakkinn býður upp á 380 kW og 910 Nm hámarksafköst, ásamt Polestar Engineered undirvagnsstillingu fyrir sívirka dempara og loftfjöðrun. Sænskar gyllingar frá Polestar fylgja pakkanum, þar á meðal á ventlalokum, öryggisbeltum og laserljósalista að innan.

Kynningarviðburðinum verður stýrt af forstjóra Polestar, Thomas Ingenlath, og yfirmanni hönnunar Polestar, Maximilian Missoni, og hefst klukkan 17:00 GMT þann 12. október. Beina útsendingu er hægt að horfa á hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum