fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Skemmdarvargur á Suðurgötunni – „Ég ætlaði varla að trúa því sem að kom næst“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 18. júlí 2022 12:32

Myndir/Twitter

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skemmdarverk hafa verið unnin á sameign á Stúdentagörðunum við Suðurgötu að undanförnu. Skemmdarvargurinn hefur meðal annars sett grjót í þvottavél með þeim afleiðingum að hún skemmdist. Þá hefur hann hent blautum þvotti íbúa á gólfið auk þess sem lyfta hússins var fyllt af húsgögnum.

Arnar Kjartansson, fyrrum íbúi á Stúdentagörðunum við Suðurgötu, vakti athygli á skemmdarverkunum á Twitter-síðu sinni í gær. Í röð færslna segir Arnar frá því sem skemmdarvargurinn hefur gert og birtir myndir af afleiðingunum.

„Fyrst var þetta frekar saklaust en samt mjög illa gert. Tekið var húsgögn sem voru frammi á 3.hæðinni og staflað í lyftuna yfir nóttina svo að þeir sem þurftu að komast í vinnu daginn eftir þurftu að nota stigann,“ segir Arnar á Twitter.

Það sem gerðist í kjölfarið kom Arnari svo á óvart. „Ég ætlaði varla að trúa því sem að kom næst. Aðilinn tók risastórt grjót, setti í eina af fjórum sameignarþvottavélina og setti hana af stað. Hún er núna ónýt,“ segir hann.

„Aðilinn hætti ekki þar, hann htók allskyns heimilisáhöld og dagblöð, setti í aðra þvottavél með næstum heilum dúnk af þvottaefni nokkrum dögum seinna og stíflaði hana. Það er nú beðið eftir viðgerðum og hvort hún sé í lagi.“

„Þetta er út í hött“

DV ræddi við íbúa á Stúdentagörðunum á Suðurgötunni sem vildi ekki láta nafns síns getið en íbúinn segir að skemmdarvargurinn hafi aftur látið finna fyrir sér í nótt. „Hann lét aftur til skarar skríða í nótt. Hann tók aðra þvottavél og braut hurðina af henni. Þetta er út í hött,“ segir íbúinn í samtali við blaðamann.

Þá gagnrýnir íbúinn harðlega viðbrögð Fé­lags­stofnun Stúdenta, sem sér um Stúdentagarðanna, en að hans sögn hefur lítið verið gert í málinu þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar íbúa. Í dag hafa bæði Fréttablaðið og Vísir vakið athygli á málinu og í kjölfarið hefur Félagsstofnun Stúdenta sagt að það verði eitthvað gert í því.

„Þetta er eiginlega bara skítafélag,“ segir íbúinn sem veltir því fyrir sér hvað hefði gerst ef málið hefði ekki vakið athygli utan Stúdentagarðanna. „Við höfðum samband við þá, báðum um myndavélar og þau sögðu að það „væri verið að vinna í þessu“ en ekkert gerðist. Svo bara klukkutíma eftir að fréttin kom út þá sögðust þeir ætla að setja upp myndavélar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Í gær

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“