Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Blaðið hefur eftir Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalækni, að töluvert fleiri hafi sýkst en þeir 188.291 sem smit hefur verið staðfest hjá. Hann sagði að nú greinist um 100 manns á dag með smit.
Hann sagði að sýkingin malli því í samfélaginu en gott hjarðónæmi hafi náðst, ef svo væri ekki væri útbreitt smit í samfélaginu.
Hvað varðar framtíðina sagðist hann halda að ástandið verði svona áfram í einhvern tíma.
Hann sagði að nú væri verið að skoða hvað verði gert í haust og hver staða bólusetninga verði þá. Þar muni þróun faraldursins ráða, hvaða afbrigði verði í gangi og hvaða bóluefni verði framleidd. „Við erum kannski í eins góðri stöðu og við getum verið, með útbreiddar bólusetningar og svo útbreiddar sýkingar ofan í það. En það er óljóst nú hversu lengi þessi vörn endist,“ sagði hann.