fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fréttir

Ákærður fyrir að nauðga dóttur sinni í bíl fyrir utan heimili þeirra

Rafn Ágúst Ragnarsson
Þriðjudaginn 24. maí 2022 19:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint - Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir kynferðislega áreitni og nauðgun gegn dóttur sinni. Samkvæmt ákærunni eiga brotin að hafa átt sér stað í bíl sem ákærði ók að heimili þeirra. Maðurinn er sagður að hafa lagt hönd á læri dóttur sinnar, strokið kynfæri hennar utanklæða og í kjölfarið nuddað kynfæri hennar innan klæða nokkra stund.

Auk þess á ákærði að hafa lagt bifreiðinni og með ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök við stúlkuna með því að setja tungu sína tvisvar á kynfæri hennar, káfa á brjóstum hennar innanklæða og setja fingur í leggöng hennar. Ákærði er sagður hafa nýtt sér yfirburðastöðu sína sem faðir stúlkunnar og það að hún var ein í bifreið og fjarri öðrum. Aldur brotaþola kemur ekki fram í ákærunni.

Ákæran er tvíliða og felst seinni liður hennar í því að í vörslu ákærða fannst Lenovo fartölva, Samsung Galaxy S8 farsími og Seagate Backup plus USB flakkari með gífurlega miklu magni af barnaníðsefni. Yfir 20 þúsund ljósmyndir og 10 þúsund hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan hátt var að finna á tækjunum. Þess er krafist að fartölvan, síminn og flakkarinn verði gerð upptæk.

Þá er þess einnig krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að stúlkunni verði greiddar bætur að 4.800.000 krónum og endurgreiðslu málskostnaðar auk þóknunar vegna starfa réttargæslumanns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Segir Sigríði Björk mann að meiri – „Við þá sem hefðu viljað sjá meira blóð renna vil ég segja“

Segir Sigríði Björk mann að meiri – „Við þá sem hefðu viljað sjá meira blóð renna vil ég segja“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir vexti stappa nærri sturlun og vaxtamunur hvergi meiri í Evrópu

Segir vexti stappa nærri sturlun og vaxtamunur hvergi meiri í Evrópu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýr stórmeistari Frímúrarareglunnar kjörinn

Nýr stórmeistari Frímúrarareglunnar kjörinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndi drengurinn í Flórída sagður í öruggum höndum þó lögregla leiti hans enn – Flókin forræðisdeila

Týndi drengurinn í Flórída sagður í öruggum höndum þó lögregla leiti hans enn – Flókin forræðisdeila