

En nú gæti orðið stefnubreyting hjá Finnum og þeir hugsað sér til hreyfings og inngöngu í NATÓ. Það er að sjálfsögðu innrás Rússa í Úkraínu sem hreyfir við þeim en nú telja þeir sig sjá svart á hvítu að ekki sé hægt að treysta Rússum, að minnsta kosti ekki á meðan Vladímír Pútín er við völd.
Finnskir fjölmiðlar segja að Sanna Marin, forsætisráðherra, hafi tilkynnt að ríkisstjórnin muni tilkynna þingi landsins fyrir páska hver afstaða hennar er til aðildar að NATÓ. Sérfræðingar túlka þessa tilkynningu sem jákvæða afstöðu til spurningarinnar um hvort Finnar eigi að sækja um aðild.
Peter Viggo Jakobsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að Rússar muni bregðast við þessari tilkynningu: „Á næstu dögum geta Finnar vænst þess að rússneskar flugvélar eða skip heimsæki þá til að sjá hvort fælingarviðbragð þeirra virki.“
Hann benti á að rússneskar herflugvélar, sem geta borið kjarnorkuvopn, hafi nýlega flogið inn í sænska lofthelgi. Ástæðan sé að Svíar séu einnig að íhuga hvort aðild að NATÓ sé fýsilegur kostur.
Hann sagði að Rússar muni væntanlega kanna hvort þeir geti haft áhrif á afstöðu Finna en líklega muni þetta bara auka líkurnar á að Finnar gangi í NATÓ.
Hann sagði að Finnar eigi að hugsa sig vel um hvað varðar aðild að NATÓ. Ef þeir gangi í bandalagið muni Svíar einnig gera það. Það muni auka spennuna á svæðinu og þar með verði aukin vígvæðing: „Rússland mun láta óánægju sína í ljós með að auka hernaðarviðbúnað sinn. Þeir munu senda hermenn, flugskeyti eða eitthvað annað óþægilega nærri Finnland, nákvæmlega eins og NATÓ sendir flugskeyti og hernaðartól nær Rússlandi.“
Hann sagði að þetta geti valdið keðjuverkun sem minni á kalda stríðið. Út frá faglegu sjónarhorni sagðist hann ekki sjá ástæðu til að Finnar gangi í NATÓ því nú þegar séu bæði Svíþjóð og Finnland eiginlega aðilar. Ef ráðist verði á löndin muni NATÓ koma til aðstoðar. Það hafi Bandaríkjamenn einnig sagt.