

Hann ræddi við Jótlandspóstinn og Ekstra Bladet um helgina um þetta í kjölfar frétta um að David Arakhamia, aðalsamningamaður Úkraínu, hafi sagt að samningaviðræður ríkjanna gangi vel og að það styttist í að forseta ríkjanna geti fundað um frið.
Jakobsen sagði að það geti vel verið að Rússland og Úkraína segist vera tilbúin til að semja um frið en staðan á vígvellinum bendi ekki til þess. „Það er enginn áhugi á friði hjá stríðsaðilunum núna. Það er ekkert sem bendir til að þeir séu þreyttir á að berjast,“ sagði hann.
Hann bætti við að Rússar séu nú að endurskipuleggja herdeildir sínar og hernaðaraðgerðir. Þeir hafi hörfað frá Kyiv og einbeiti sér nú að austurhluta Úkraínu.
„Núna er ekkert til að semja um. Úkraína vill ekki gefa Donbas eða Krím eftir og Rússar geta ekki bara yfirgefið Úkraínu án þess að hafa náð nokkru,“ sagði hann.
Hann sagði að hugsanlega muni Donbas gegna lykilhlutverki í friðarsamningum. Ef Rússum takist að ná Donbass á sitt vald geti það orðið mikilvægt í samningaviðræðum.
Hann sagðist telja að yfirlýsingar Úkraínumanna um gang friðarviðræðna séu hluti af því upplýsingastríði sem á sér stað. Bæði löndin reyni að draga upp þá mynd að þau vilji frið og að það sé hinn aðilinn sem standi í vegi fyrir friði. „Jafnvel þótt hvorugt ríkið sé tilbúið til að leggja niður vopn,“ sagði hann.