

Daily Mail skýrir frá þessu. Fram kemur að nýlega hafi þurft að leggja rúmlega 500 rússneska hermenn inn á sjúkrahús eftir að þeir drukku eitrað áfengi.
Daily Mail segir að samkvæmt því sem úkraínska leyniþjónustan segi í færslu á Facebook þá hafi íbúar í Izium gefið rússneskum hermönnum eitrað sætabrauð. Tveir hermenn hafi látist og 28 liggi á gjörgæsludeild. Að auki hafi mörg hundruð orðið „mjög veikir“ eftir að hafa drukkið eitrað áfengi sem óbreyttir borgarar gáfu þeim.
Í færslu leyniþjónustunnar segir að Úkraínumenn berjist gegn hernámsliðinu með öllum tiltækum ráðum. Einnig segir að íbúar í Izium hafi „gert vel við“ rússneska hermenn og gefið þeim sætabrauð. „Tveir hermenn létust samstundis, 28 voru fluttir á gjörgæslu.“