

Til að koma þessum upplýsingum til rússneskra hermanna senda Úkraínumenn þeim skilaboð þar sem eitt lykilorð er mjög mikilvægt fyrir friðsamlega uppgjöf. „Milljón!“ eiga rússneskir hermenn að hrópa ef þeir vilja gefast upp en orðið er tilvísun í það loforð úkraínska varnarmálaráðuneytisins að greiða þeim rússnesku hermönnum, sem gefast upp, 5 milljónir rúblna en það svara til tæplega átta milljóna íslenskra króna.
Úkraínski varnarmálaráðherrann birti færslu á samfélagsmiðlum nokkrum dögum eftir að innrásin hófst þar sem hann sagði að allir Rússar sem „myndu leggja niður vopn“ fengju greiðslu og sakaruppgjöf ásamt þeim möguleika að geta sótt um úkraínskt ríkisfang að stríðinu loknu. „Þið eigið möguleika á að hefja nýtt líf. Takið ákvörðun. Komið til okkar án vopna, með hvítan fána. Segið lykilorðið „milljón“ til að lifa af,“ skrifaði hann.
Þetta virðist hafa borið árangur ef marka má frásögn úkraínskra yfirvalda sem skýrðu frá því 22. mars að rússneskur hermaður hafi komið akandi í skriðdreka og gefist upp til að sleppa úr stríðinu. Hermaðurinn er sagður hafa verið þreyttur á stríðinu og hafi komið einn akandi á skriðdrekanum.