fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Zelenskyy ávarpaði Grammy-hátíðina – „Hver er andstæða tónlistar? Þögnin í eyðilögðum bæjum og dánu fólki“ – Myndband

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 4. apríl 2022 04:57

Volodymyr Zelenskyy ávarpaði gesti hátíðarinnar. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grammy-verðlaunin voru afhent í Las Vegas í nótt. Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, ávarpaði hátíðina en upptaka af ávarpi hans var leikin fyrir hátíðargesti og í beinni sjónvarpsútsendingu. Hann var með skýr skilaboð til hátíðargesta og annarra: „Styðjið okkur á allan hugsanlega hátt.“

„Hver er andstæða tónlistar? Þögnin í eyðilögðum bæjum og dánu fólki,“ sagði hann á upptökunni sem var sýnd áður en bandaríski söngvarinn John Legend steig á svið ásamt Mika Newton, Siuzanna Iglidan og Lyuba Yakimchuck sem eru frá Úkraínu og vinna við tónlist.

Trevor Noah var kynnir á hátíðinni í nótt.

Meðal helstu verðlauna næturinnar voru:

We Are með Jon Batiste var valin besta platan.

Besta lagið var Leave the Door Open með Silk Sonic.

Besti nýi listamaðurinn var Olivia Rodrigo sem fékk einnig verðlaun fyrir bestu poppplötuna, Sour.

Foo Fighters fengu verðlaun fyrir bestu rokkplötuna en það er Medicine at Midnight.

Call Me If You Get Lost var valin besta rappplatan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“