fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025
Fréttir

„Ég hélt að þetta væri blóð úr henni“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 21. mars 2022 08:00

Olga, Victoria og Dmytro. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

27 ára úkraínsk kona, Olga, særðist alvarlega þegar hún hélt á sex vikna dóttur sinni, Victoria, og verndaði hana með líkama sínum fyrir sprengjubrotum í einni árás Rússa á Kyiv.

Mæðgurnar dvelja nú á Okhmatdyt barnaspítalanum í Kyiv.

Á myndbandsupptöku, þar sem rætt er við Olgu, segist hún hafa vaknað til að gefa dóttur sinni brjóst. Hún hafi verið búin að vefja hana inn í teppi þegar Rússar gerðu sprengjuárás. „Það er það sem varð henni til lífs. Ég náði að pakka henni inn rétt áður. Síðan kom Dmytro og hlífði okkur líka,“ sagði hún.

„Ég særðist á höfði og blóðið streymdi. Það streymdi niður á barnið. Ég skildi þetta ekki, ég hélt að þetta væri blóð úr henni,“ sagði hún. Dmytro tók þá við stúlkunni og Olga öskraði að hún hefði skorist en Dmytro gat róað hana og sagt henni að svo væri ekki, blóðið væri úr henni sjálfri.

Olga skarst illa höfði og víða á líkamanum en dóttir hennar slapp með minniháttar rispur og marbletti.

„Það eina sem við getum gert er að vera jákvæð, bara trúa því að þetta hafi verið það versta og hryllilegasta sem gat komið fyrir okkur,“ sagði Dmytro.

Myndir af Olgu með Victora í fangi sér hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum að undanförnu. Olga er með greinilega áverka á myndunum sem þykja sýna vel þann hrylling og kostnað sem óbreyttir borgarar greiða fyrir innrás Rússa og árásir þeirra á óbreytta borgara.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jón Trausti um myndbirtinguna af barni Snorra – Gegn hefðbundnum siðavenjum fjölmiðla

Jón Trausti um myndbirtinguna af barni Snorra – Gegn hefðbundnum siðavenjum fjölmiðla
Fréttir
Í gær

Sverrir Einar ákærður fyrir brot í rekstri fjögurra félaga – Segist hafa verið beittur ólöglegum aðgerðum

Sverrir Einar ákærður fyrir brot í rekstri fjögurra félaga – Segist hafa verið beittur ólöglegum aðgerðum
Fréttir
Í gær

Tölvupóstar Epstein um Trump setja allt í háaloft – „Donald er fokking klikkaður“

Tölvupóstar Epstein um Trump setja allt í háaloft – „Donald er fokking klikkaður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fasteignasali situr í súpunni vegna myglu

Fasteignasali situr í súpunni vegna myglu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rúmlega 4 þúsund Barnabónus pakkar afhentir nýbökuðum foreldrum

Rúmlega 4 þúsund Barnabónus pakkar afhentir nýbökuðum foreldrum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karen lifði við ágæt lífsgæði en kemst nú varla fram úr rúminu – „Læknirinn yppti leiður öxlum og sagði að því miður gæti hann ekkert gert“

Karen lifði við ágæt lífsgæði en kemst nú varla fram úr rúminu – „Læknirinn yppti leiður öxlum og sagði að því miður gæti hann ekkert gert“