fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Fimm ár í fangelsi fyrir að kalla hátíðarmat „hestatyppi“

Breskur gullgrafari handtekinn í Kirgistan – Olli tímabundnu verkfalli í námunni

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 3. janúar 2016 21:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Mcfeat, breskur starfsmaður í gullnámu í Kirgistan, hefur verið handtekinn fyrir að kalla hátíðarmat þar í landi „hestatyppi.“ Mcfeat á yfir höfði sér kæru vegna málsins og verði hann fundinn sekur gæti hann eytt næstu þremur til fimm árum í fangelsi.

Frá þessu er greinir Guardian en þar segir að Mcfeat hafi birt færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann kallaði hátíðarmat samstarfsfélaga sinna frá Kirgistan, „hestatyppi.“

Mcfeat starfar hjá fyrirtækinu Centerra Gold og samkvæmt yfirvöldum í Kirgistan er hann nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins.

Mcfeat birti mynd á Facebook þar sem hann greindi frá því að samstarfsfélagar hans frá Kirgistan ætluðu að borða „chuchuk,“ sérstaka pylsu gerða úr hrossakjöti, um hátíðirnar og sagði hann þá vera að fara að borða „hestatyppi.“ „Chuchuk“ þykir mikið lostæti í Kirgistan og urðu samstarfsmenn Mcfeat æfir vegna ummæla hans.

Ummæli Mcfeat urðu meðal annars til þess að starfsmenn námunnar fóru í tímabundið verkfall.

Samkvæmt talsmanni innanríkisráðuneytis Kirgistans er Mcfeat í haldi fyrir að hafa ollið verkfallinu en tekjur frá námunni nema um 10 prósentum af verðmæti þjóðarframleiðslu landsins.

Mcfeat eyddi færslunni og baðst afsökunar áður en hann var handtekinn. Hann sagðist ekki hafa ætlað að móðga neinn.

Talsmenn breska utanríkisráðuneytisins segjast ætla að hjálpa Mcfeat en hafa þó ekki tekist að fá hann lausan úr haldi.

„Við erum í sambandi við yfirvöld á staðnum og erum reiðubúin að veita honum ráðgjöf vegna málsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“