fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Eldgosið vekur athygli í vinsælasta morgunþætti Bandaríkjanna – „Ég vil heyra hann segja nafnið á eldgosinu aftur“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 21. apríl 2021 16:36

Skjáskot úr innslaginu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldgosið í Geldingadölum hefur svo sannarlega vakið mikla athygli síðan það hófst fyrir rúmum mánuði síðan. Eldgosið var fljótt að skella sér í heimsfréttirnar en vegna heimsfaraldursins sem geisar enn hafa fréttamenn að utan ekki verið ýkja duglegir að koma hingað til lands til að fjalla um gosið.

Nú hefur þó orðið breyting á því en fréttamaður ABC News kom hingað til lands og var í beinni frá gosstöðvunum í vinsælasta morgunþætti Bandaríkjanna í morgun, Good Morning America. Þátturinn hefur verið vinsælasti morgunþáttur landsins síðan árið 2012 og fylgjast rúmlega 3 milljónir manna með hverjum þætti.

Fréttamaðurinn Will Reeve sagði frá eldgosinu í beinni og spjallaði við kynna þáttarins. „Þetta er magnað, ég er ekki viss um að orð eða myndir geti sýnt nógu vel hversu einstakt þetta er,“ sagði Will og reyndi sitt besta við að bera fram Fagradalsfjall.

Segja má að honum hafi gengið nokkuð vel að bera nafnið fram, sérstaklega miðað við framburð útlendinga á eldfjallinu í Eyjafjallajökli. „Ég vil heyra hann segja nafnið á eldgosinu aftur,“ sagði einn kynnir þáttanna eftir innslagið hans Will frá Íslandi.

Will er fullbólusettur gegn Covid-19 og fékk þess vegna að fara nánast beint inn í landið. Þáttastjórnendur GMA America vekja sérstaklega á því að ferðamenn geti gengið í landið ef þeir eru bólusettir gegn veirunni. Þeir sem eru bólusettir þurfa þó að fara í skimun og bíða eftir niðurstöðum. Niðurstöðurnar koma yfirleitt eftir um fjórar klukkustundir, ekki má fara að gosstöðvunum fyrr en niðurstaðan er komin í hús.

Innslagið má sjá hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti