fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
433Sport

Segir Tottenham eiga hættu á að missa Kane frá sér – „Gæti leitað annað ef slíkt tækifæri býðst“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 29. mars 2021 21:00

Harry Kane.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Redknapp, fyrrum leikmaður Tottenham og núverandi sérfræðingur Sky Sports segir að Tottenham eigi á hættu á að missa Harry Kane, framherja liðsins frá félaginu takist því ekki að ná Meistaradeildarsæti á tímabilinu.

Tottenham er sem stendur í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar að 29 umferðir hafa verið leiknar. Liðið er með 48 stig, þremur stigum frá Meistaradeildarsæti.

Harry Kane verður 28 ára í júlí, hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Tottenham og er nú á þeim tímapunkti á sínum knattspyrnuferli að vera fara í gegnum sín bestu ár á ferlinum.

Jamie Redknapp, sérfræðingur Sky Sports, telur að Kane muni vilja yfirgefa Tottenham ef félagið getur ekki staðið undir hans persónulegu markmiðum.

„Ef Tottenham endar í Meistaradeildarsæti, ef Tottenham vinnur enska deildarbikarinn-sem mun reynast mjög erfitt, gæti Kane litið á stöðu sína og sagt ‘ég vil vera áfram hjá félaginu því það hefur allt sem ég þarf.“

„En ef hann finnur það í eina sekúndu að félagið sé ekki metnaðarfullt eða sé ekki að stefna í rétta átt, gæti hann leitað annað ef slíkt tækifæri býðst á öðrum stað. Hann mun ekki vilja líta til baka eftir nokkur ár og hugsa ‘ég vildi óska þess að ég hefði unnið þetta.’ Hann mun vilja spila í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili,“ sagði Jamie Redknapp, sérfræðingur Sky Sports við PA.

Kane á að baki 327 leiki fyrir Tottenham, hann hefur skorað 215 mörk fyrir félagið og gefið 46 stoðsendingar. Eitt vantar þó á hans ferilskrá, það eru titlar, einhvað sem allir leikmenn vilja.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum
Duran aftur til Evrópu

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“

Amanda: „Truflaði okkur aðeins en nú erum við búnar að venjast honum“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

United staðfestir ráðningu á Jonny Evans

United staðfestir ráðningu á Jonny Evans
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa

Valur býður upp á einn flottasta knattspyrnuskóla landsins – Lagerback, Heimir, Hannes Þór og fleiri góðir þjálfa
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Komið í ljós hver ljóshærða konan er – Þekkt fyrir efni sem hún framleiðir fyrir klámsíður

Komið í ljós hver ljóshærða konan er – Þekkt fyrir efni sem hún framleiðir fyrir klámsíður
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Arsenal hóf formlegt samtal við enska kantmanninn um helgina

Arsenal hóf formlegt samtal við enska kantmanninn um helgina
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Útskýrir af hverju Liverpool keypti Nunez frekar en Isak – Það var Klopp sem réði öllu

Útskýrir af hverju Liverpool keypti Nunez frekar en Isak – Það var Klopp sem réði öllu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skellt í lás á hinu glæsilega hóteli fyrir íslensku stjörnurnar – Hér dvelja þær næstu vikur

Skellt í lás á hinu glæsilega hóteli fyrir íslensku stjörnurnar – Hér dvelja þær næstu vikur