fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fókus

Vilhjálmur tekur ummæli sín til baka og skýtur á Bjarna Ben

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 4. mars 2021 17:40

Samsett mynd - Vilhjálmur og Bjarni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem hann lét falla í útvarpsþættinum Brennslunni, sem er á dagskrá FM957. Ljóst er að Vilhjálmur er að slá á létta strengi með yfirlýsingu sinni, þar sem hann skýtur meðal annars á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra.

Vilhjálmur var gestur í þættinum í gær. Í svokallaðri skýrslutöku, sem snýst um að spyrja gesti fjölda spurninga, sagðist  Vilhjálmur geta lyft 100 kílóum í bekkpressu. Vilhjálmur segist hafa haldið að hann mætti nota sömu aðferð og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sem birti myndband af sjálfum sér lyfta 120 kílóum eftir sömu spurningu í sama útvarpsþætti.

Lyfta ráðherra vakti mikla athygli, en margir bentu á að hans aðferð væri ekki í samræmi við reglur Alþjóða Kraftlyftingasambandsins.

Vilhjálmur virðist hafa fengið að heyra af því eftir þáttinn, og ákvað því að reyna við bekkpressuna með réttri aðferð. Niðurstaðan var sú að hann gat lyft 80 kílóum, en ekki 100.

Hann segir að mistök þessi verði sér hvatning og ætlar hann sér að ná 100 kílóum í sumarbyrjun.  Yfirlýsingin endar á tilvitnun í einn virtasta lögmann Bandaríkjanna, Denny Crane, sem sagði: Never lost, never will.

Yfirlýsingu Vilhjálms má lesa hér að neðan, sem hann sendi upphaflega í Brennsluna til upplesturs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Simone Biles hefur gengist undir þrjár lýtaaðgerðir – „Þú gætir aldrei giskað á tvær þeirra“

Simone Biles hefur gengist undir þrjár lýtaaðgerðir – „Þú gætir aldrei giskað á tvær þeirra“
Fókus
Í gær

Konan byrjaði að halda framhjá eftir swing-partý – Svo versnaði það

Konan byrjaði að halda framhjá eftir swing-partý – Svo versnaði það
Fókus
Fyrir 3 dögum

Allir eru að bíða eftir að Hafdís kynni til leiks nýjan kærasta – Gerði þetta í staðinn

Allir eru að bíða eftir að Hafdís kynni til leiks nýjan kærasta – Gerði þetta í staðinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Komst að fortíð kærustunnar og treystir henni ekki lengur

Komst að fortíð kærustunnar og treystir henni ekki lengur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hafði kynmök við aðra konu fyrir framan unnusta hennar – Segist hafa gert henni greiða

Hafði kynmök við aðra konu fyrir framan unnusta hennar – Segist hafa gert henni greiða