fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Harmleikur í Þýskalandi – Fyrirsætan fannst látin viku eftir skilnað við knattspyrnuhetjuna

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 10. febrúar 2021 11:57

Boateng og fyrrum kærasta hans sem tók eigið líf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kasia Lenhardt 25 ára fyrirsæta í Þýskalandi fannst látin í íbúð sinni í Berlín í gær. Vika er síðan að Lenhardt og Jerome Boateng leikmaður FC Bayern greindu frá skilnaði sínum.

Lenhardt er fædd í Póllandi en skilnaður þeirra var mikið í fréttum, hún hafði verið sökuð um að reyna að svíkja af honum fé. Kasia átti einn son úr fyrra sambandi en þessi 25 ára stúlka og Boateng höfðu verið saman í tæpa 15 mánuði þegar leiðir skildu.

Kasia sagði eftir skilnað þeirra að Boateng væri djöfullinn sjálfur, hún hafði lofað því að segja sína sögu þegar hún hefði náð að jafna sig á sambandsslitunum.

Boateng ákvað að slíta sambandinu í upphafi árs þegar Kasia hafði klessukeyrt bifreið hans undir áhrifum áfengis. „Kasia varð unnusta mín eftir að hafa náð að slíta mig frá fyrrum unnustu minni,“ sagði Boateng í síðustu viku

„Ég ákvað að standa með Kasia og reyndi að láta það ganga, Kasia vildi að við myndum gera sambandið opinbert. Kasia hótaði mér oft á meðan sambandi okkar stóð, hún hótaði að stúta ferli mínum og koma í veg fyrir að ég gæti hitt börnin mín.“

„Kasia sagðist ætla að saka mig um að hafa lamið sig, hún vissi að móðir barnanna minna hefði ásakað mig um það. Kasia hafði samband við hana og sagðist ætla að hjálpa henni fyrir dómi.“

Boateng hefur lengi leikið með FC Bayern en hann varð Heimsmeistari með Þýskalandi á sínum tíma og lék einnig með Manchester City.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Í gær

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd