fbpx
Miðvikudagur 11.júní 2025
Fréttir

Halla Fróða: Sumar þessara kvenna hafa átt mömmu eða systur sem hefur látist úr krabbameini

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 29. janúar 2021 07:00

Halla Fróðadóttir, lýtaskurðlæknir. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halla Fróðadóttir, formaður Félags íslenskra lýtalækna, hefur sérhæft sig í uppbyggingu brjósta eftir brjóstnámsaðgerðir. Hún er mikil dreifbýlisgella og heldur bæði hesta og hænur.

Halla er í forsíðuviðtali í nýjasta helgarblaði DV. Hér er brot úr viðtalinu.

Nokkuð hefur verið fjallað um hið svokallaða brakkagen, BRCA-gen. Meinvaldandi breytingar í bæði BRCA1 og BRCA2 auka hættu á nokkrum krabbameinum, meðal annars brjóstakrabbameini. Margar þeirra kvenna sem vita að þær eru með þessa stökkbreytingu kjósa að fara í áhættuminnkandi brjóstnám.

„Þetta eru frískar konur en í mörgum tilvikum eru mjög miklar líkur á að þær fái brjóstakrabbamein. Þær standa því frammi fyrir þeirri ákvörðun að láta fjarlægja á sér brjóstin eða vera í reglulegu eftirliti með myndrannsóknum. Meirihluti kvenna velur að fara í brjóstauppbyggingu samhliða brjóstnáminu en þó ekki allar konur.

Þetta er stór ákvörðun og getur haft mikil áhrif á lífsgæði kvenna. Það geta verið aukin lífsgæði fyrir konu að velja áhættuminnkandi brjóstnám en það er ekki sjálfgefið að allt gangi að óskum. Fylgikvillar aðgerða geta haft áhrif á útkomuna og geta þarfnast endurtekinna aðgerða. Þetta hefur óhjákvæmilega áhrif á lífsgæði þessara kvenna. Við getum líka verið með konu sem fer í vel heppnaða aðgerð en henni líður samt ekki nógu vel með þetta. Það getur verið erfitt að venjast tilfinningunni í brjóstunum eftir aðgerð.

Þær konur sem fara í áhættuminnkandi brjóstnám eru yfirleitt á aldrinum 35-50 ára. Bakgrunnur þessara kvenna er mismunandi og þær geta verið með alls konar áfallasögu á bakinu sem hefur áhrif á upplifun þeirra. Sumar þessara kvenna hafa átt mömmu eða systur sem hefur látist úr krabbameini. Það er að mörgu að huga.“

Sjúkratryggingar taka þátt í að niðurgreiða áhættuminnkandi aðgerðir sem og brjóstaaðgerðir í kjölfar krabbameins. Þegar kemur að því sem kallast hreinar fegrunaraðgerðir greiðir fólk hins vegar sjálft fyrir aðgerðina.

Viðtalið má lesa í heild sinni í nýjasta helgarblaði DV.

Einfalt er að gerast áskrifandi að vef- og/eða prentútgáfu blaðsins með því að smella hér: dv.is/skráning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins
Fréttir
Í gær

Ástandið rólegra í Los Angeles en deilurnar rétt að byrja

Ástandið rólegra í Los Angeles en deilurnar rétt að byrja
Fréttir
Í gær

Jóhanna skrifaði grein um woke og kveikti bál hjá helstu samfélagsrýnum – „Ég held að þetta sé innanmein sem til dæmis drap flokkinn þinn“

Jóhanna skrifaði grein um woke og kveikti bál hjá helstu samfélagsrýnum – „Ég held að þetta sé innanmein sem til dæmis drap flokkinn þinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarna er meðalævilengdin mest – Ísland ekki á topp 10

Þarna er meðalævilengdin mest – Ísland ekki á topp 10
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fræg mál útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt rifjuð upp – Tengdadóttir ráðherra, skákmaður, barn staðgöngumóður og fólk á flótta

Fræg mál útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt rifjuð upp – Tengdadóttir ráðherra, skákmaður, barn staðgöngumóður og fólk á flótta