fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fréttir

Yfirlýsing vegna dauðsfalla – Ekkert bendir til að beint orsakasamhengi sé á milli dauðsfalla og bólusetninga

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. janúar 2021 14:55

Mynd: Stjórnarráð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma Möller landlæknir og Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar hafa sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af tilkynningum um alvarlegar aukaverkanir í tengslum við bólusetningar fyrir COVID-19. Fjögur andlát hafa verið tilkynnt í kjölfar bólusetningar en ekkert bendir til orsakasamhengis á milli bólusetninganna og andlátanna. Sett af stað óháð rannsókn á fimm tilvikum varðandi aukaverkanir, þar af eru fjögur andlát.

Tilkynningin er eftirfarandi:

„Rannsókn vegna tilkynntra aukaverkana bóluefnis við COVID-19
5.1.2020

 

Lyfjastofnun hefur verið tilkynnt um fimm alvarlegar aukaverkanir, þar af fjögur andlát, sem hugsanlega kunna að tengjast bólusetningu við SARS-CoV-2 veirunni. Í öllum tilfellunum erum að ræða aldraða einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma og sem búa á hjúkrunarheimilum. Í ljósi þess að um nýtt bóluefni er að ræða hafa landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Lyfjastofnunar ákveðið að fá óháða aðila til að fara gaumgæfilega yfir þessi fimm alvarlegu atvik.

 

Tilgangur rannsóknarinnar er að meta hvort líklegt sé að þessi alvarlegu atvik tengist bólusetningunni eða hvort þau tengist undirliggjandi sjúkdómum. Eins og sakir standa bendir ekkert til þess að beint orsakasamhengi sé þarna á milli. Þess ber að geta að sá hópur sem bólusettur var með fyrstu sendingu bóluefnisins samanstendur af öldruðum og hrumum einstaklingum sem dvelja á hjúkrunarheimilum, öldrunardeildum eða eru í dagdvöl. Hafa ber í huga að að jafnaði látast 18 einstaklingar á dvalar- og hjúkrunarheimilum á viku hverri. Rannsóknin verður gerð af tveimur sérfróðum læknum á sviði öldrunar og verður henni hraðað eins og kostur er. Stefnt er að því að frumniðurstöður liggi fyrir innan viku til 10 daga.

 

Jafnframt hefur verið kallað eftir upplýsingum frá Norðurlöndunum og frá Lyfjastofnun Evrópu um hvort sjá megi aukna tíðni dauðsfalla hjá eldri einstaklingum sem hafa verið bólusettir í öðrum Evrópulöndum undanfarna daga og vikur. Þá fer fram sérstök tölfræðigreining á dauðsföllum í þessum hópi á vegum embættis landlæknis.

 

Vakin er athygli á því að allar íslenskar tilkynningar um mögulegar aukaverkanir lyfja eru skráðar í miðlægan gagnagrunn sem Lyfjastofnun Evrópu heldur úti til frekari greiningar, með það að markmiði að tryggja svo kostur er gæði og öryggi lyfja. Fyrir Íslands hönd tekur Lyfjastofnun virkan þátt í þeirri vinnu.

 

Þegar niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir verður skoðað hvort breyta þurfi nálgun að bólusetningum eldri einstaklinga.

 

Alma D. Möller

landlæknir

 

Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir

 

Rúna Hauksdóttir Hvannberg

forstjóri Lyfjastofnunar“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Heimir Már urðar yfir hrafna Viðskiptablaðsins út af pistli um Ásthildi Lóu

Heimir Már urðar yfir hrafna Viðskiptablaðsins út af pistli um Ásthildi Lóu
Fréttir
Í gær

Dregur Þórarinn til ábyrgðar vegna ógnarstjórnar á Þjóðminjasafninu – „Hann kaus að vernda vald frekar en fólkið“

Dregur Þórarinn til ábyrgðar vegna ógnarstjórnar á Þjóðminjasafninu – „Hann kaus að vernda vald frekar en fólkið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima

Fundu kannabis í Haribo sælgæti – Heila fjölskyldu byrjaði að svima
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Hún var níu mánuði á spítala en sjö mánuði heima“

„Hún var níu mánuði á spítala en sjö mánuði heima“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“

Foreldrar í Aþenu segja samskiptaráðgjafa ekki valda hlutverkinu – „Það er enginn trúverðugleiki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“

Lífið í uppnámi í miðri Íslandsferð – „Gæti ég komist í kast við lögin út af þessu?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum

Sakar Krabbameinsfélagið um vanrækslu og mistök – Meinið hafði breiðst út um líkamann og olli ólýsanlegum þjáningum