fbpx
Föstudagur 20.mars 2026
433Sport

Alexandra hættir með knattspyrnumanninum – Eyddi honum af Instagram

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 24. október 2020 09:00

Myndir: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Alexandra Burke er hætt með knattspyrnumanninum Angus MacDonald, sem leikur í næst efstu deild Englands með Rotherham United. Alexandra hefur nú eytt öllum myndunum sem hún var með á samfélagsmiðlinum Instagram af þeim saman.

„Alexandra og Angus eru bæði mjög upptekin og þau hafa ekki náð að hittast mikið í útgöngubanninu,“ sagði heimildarmaður í samtali við DailyMail um málið. „Þau ákváðu að slíta þessu alveg og fyrir Alexöndru þýddi það að eyða öllum myndunum af þeim saman á Instagram.“

Alexandra og Angus staðfestu að þau væru í sambandi þegar þau sáust saman í júlí á síðasta ári. Það var einungis nokkrum vikum eftir að hún hafði hætt með fyrrum unnusta sínum Josh Ginnely. Fyrsta ár hennar og Angus saman var afar erfitt þar sem knattspyrnumaðurinn greindist með krabbamein stuttu eftir að þau byrjuðu saman. Angus glímdi við krabbameinið og náði að sigrast á því í desember sama ár.

Þrátt fyrir að Angus hafi sigrast á krabbameininu eyddu þau ekki miklum tíma saman og í mars á þessu ári deildi Alexandra mynd af sér með frægum rappara, Stormzy. Aðdáendur hennar hugsuðu með sér að hún væri byrjuð að rugla saman reitum með rapparanum. „Þau virðast vera mjög náin,“ sagði einn aðdáandi í athugasemdum undir myndinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“

Gylfi Þór tjáir sig um háværa orðróma – „Væri skrýtið en mjög gaman“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Albert kom inn á og lét strax til sín taka – Palace þurfti að hafa fyrir hlutunum á Kýpur

Albert kom inn á og lét strax til sín taka – Palace þurfti að hafa fyrir hlutunum á Kýpur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kærkomin endurkoma Orra eftir erfitt ár – „Hann er búinn að vera að brotna niður meiðslalega og vera á dimmum stað“

Kærkomin endurkoma Orra eftir erfitt ár – „Hann er búinn að vera að brotna niður meiðslalega og vera á dimmum stað“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann

Börsungar sagðir vilja fá Rashford aftur á láni frekar en að kaupa hann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar

Eru að kaupa framherjann sem þeir náðu ekki að fá í janúar