fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Henry telur að þessi gæti orðið óvænt stjarna á HM í sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 18. maí 2026 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thierry Henry segir miðjumanninn Manu Kone geta orðið óvænta stjörnu og lykilmann fyrir Frakkland á HM í sumar.

Didier Deschamps tilkynnti nýverið 26 manna hóp Frakka fyrir mótið og þar fékk Kone sæti, en miðjumaðurinn hefur farið nokkuð undir radarinn þrátt fyrir gott tímabil með Roma á Ítalíu.

„Fólk talar mikið um Dembele, Doue, Barcola, Saliba og Konate, en ekki mikið um Manu Kone. Að mínu mati er hann einn besti varnartengiliður heims um þessar mundir,“ segir Henry.

Getty Images

Henry þjálfaði Kone er hann var með Ólympíulið Frakka sem vann silfur á leikunum í París og segir hann vera leikmann sem gefi allt fyrir liðið.

„Hann er svona týpa sem stuðningsmenn elska. Hann minnir mig svolítið á Dirk Kuyt hjá Liverpool. Kannski ekki stærsta stjarnan, en hann gerir allt fyrir liðið.“

Kone, sem er 24 ára gamall, hefur spilað 36 leiki fyrir Roma á tímabilinu og leikið tólf landsleiki fyrir Frakkland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

United í leit að markverði

United í leit að markverði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gæti óvænt farið frá Tottenham

Gæti óvænt farið frá Tottenham
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum
Má fara frá Liverpool
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór

Netverjar reiðir eftir að hafa séð verðið á mat og drykk – Þetta kostar kringla og bjór
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði

United með tvo kosti sem mögulega vinstri bakverði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum

Fékk skammir frá mömmu sinni eftir að hafa verið sólbrenndur á myndum