fbpx
Þriðjudagur 16.júní 2026
433Sport

Liðsfélagar Tómasar blóðugir um helgina – „Þetta var algjört kaos“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 18. maí 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Celtic ruddust inn á völlinn eftir að liðið tryggði sér skoska meistaratitilinn með 3-1 sigri á Hearts um helgina.

Mikill fögnuður braust út þegar Callum Osmand skoraði þriðja mark Celtic í uppbótartíma, en í kjölfarið skapaðist mikil ringulreið á vellinum þegar stuðningsmenn streymdu inn á.

Leikmönnum Hearts var fylgt af velli af öryggisvörðum og félagið segir bæði leikmenn og starfsfólk hafa orðið fyrir ofbeldi og að fúkyrði hafi verið látin falla í þeirra garð.

Christian Borchgrevink, leikmaður Hearts, segir suma liðsfélaga sína hafa komið blóðuga inn í klefa eftir atvikið.

„Þetta var algjört kaos. Við hlupum inn á völlinn til að verja liðsfélaga okkar. Allir komust inn ómeiddir, þó það hafi sést blóð hér og þar,“ sagði Borchgrevink.

Hearts var á toppi deildarinnar lengst af á tímabilinu og hefði dugað jafntefli til að verða fyrsta liðið fyrir utan Celtic og Rangers til að verða meistari í 41 ár.

Tómas Bent Magnússon er á mála hjá Hearts en hann hefur verið meiddur síðustu vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eiginkona Cucurella sorgmædd eftir skipti hans til Real Madrid – „„Ég veit ekki hvernig ég á að kveðja heimilið mitt“

Eiginkona Cucurella sorgmædd eftir skipti hans til Real Madrid – „„Ég veit ekki hvernig ég á að kveðja heimilið mitt“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vakti mikla athygli með sögu sinni í beinni útsendingu – „Eins og ég væri sykurpabbi Kim Kardashian“

Vakti mikla athygli með sögu sinni í beinni útsendingu – „Eins og ég væri sykurpabbi Kim Kardashian“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Dwight Yorke gæti verið á leið í áhugavert starf í þjálfun

Dwight Yorke gæti verið á leið í áhugavert starf í þjálfun
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Óvænt úrslit á HM í dag: Spánn skoraði ekki gegn smáþjóð – Lukaku bjargaði stigi fyrir Belga

Óvænt úrslit á HM í dag: Spánn skoraði ekki gegn smáþjóð – Lukaku bjargaði stigi fyrir Belga
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Grunaður nauðgari vekur athygli í Bandaríkjunum – Að leika sér með börnum í frítíma

Grunaður nauðgari vekur athygli í Bandaríkjunum – Að leika sér með börnum í frítíma
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Klopp langaði að kýla sjálfan sig í andlitið eftir ummæli í beinni – Voru túlkuð á rangan hátt

Klopp langaði að kýla sjálfan sig í andlitið eftir ummæli í beinni – Voru túlkuð á rangan hátt