fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Heill grunnskóli getinn með glasafrjóvgun árlega

Erla Hlynsdóttir
Laugardaginn 15. ágúst 2020 10:58

Ófrjósemi hrjáir marga. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kostnaður við glasafrjóvgun getur auðveldlega farið upp í eina til tvær milljónir króna. Aukagjald leggst ofan á ef kona gengur með barn sem verður til úr eggi eiginkonu hennar. Mjög mikil eftirspurn er eftir gjafasæði og -eggjum.

„Árlega má áætla að okkar starfsemi verði til þess að um 250 börn fæðist. Þessi fjöldi jafngildir einum grunnskóla með 25 börn í bekk í hverjum árgangi,“ segir Snorri Einarsson, framkvæmdastjóri Livio Reykjavík. Pör sem glíma við ófrjósemi, sem og samkynja pör sem vilja eignast barn, hafa aðeins einn valkost hér á landi þegar kemur að tæknifrjóvgun. Þetta er fyrirtækið Livio, sem áður hét Art Medica.

Stundin greindi frá því í vor að 109 milljóna króna arður hafi verið greiddur út úr Livio árið 2018 en alls hafi arðgreiðslur af tæknifrjóvgunum hér á landi numið rúmlega 600 milljónum frá 2012.

500 glasafrjóvganir á ári

Spurður hvort honum finnist réttlætanlegt að greiða arð út úr fyrirtæki sem hefur þann tilgang að hjálpa fólki að eignast börn segir Snorri: „Við teljum okkur vera að reka starfsemi af miklum gæðum, auk þess sem við erum að greiða niður lán og fjárfestingar. Það er greiddur út arður af flestallri einkarekinni heilbrigðisstarfsemi á Íslandi og við lútum sömu lögmálum. Við leggjum alla krafta okkar og sál í að sinna þessu starfi vel. Fyrst og fremst erum við hér fyrir okkar sjúklinga og viljum veita þeim góða meðferð. Við teljum okkur geta staðið vel undir því,“ segir hann.

Um 500 glasafrjóvgunarmeðferðir fara fram á Livio ár hvert. „Ekki fara allir okkar skjólstæðingar í glasafrjóvgunarmeðferðir en sumir þeirra sem fara í slíka meðferð fara jafnvel í fleiri en eina á ári. Gróft áætlað eru það um 600-700 einstaklingar eða pör sem fá meðferð hjá okkur árlega,“ segir Snorri.

Stéttarfélög taka þátt

Það er vissulega kostnaðarsamt að fá meðferð vegna ófrjósemi en Snorri segir verðið hér fyllilega samkeppnishæft við verð á hinum Norðurlöndunum. „Aðkoma ríkisins að meðferðunum er hins vegar mjög misjöfn milli Norðurlandanna en sem betur fer urðu nýlega breytingar til batnaðar hér á landi þar sem greiðsluþátttaka ríkisins jókst. Hún er samt enn langt frá því sem hún er á hinum Norðurlöndum.“

Með endurteknum glasafrjóvgunarmeðferðum getur kostnaður einstaklings eða pars auðveldlega farið upp í eina til tvær milljónir króna. Þó má benda á að stéttarfélög taka gjarnan þátt í þessum kostnaði.

Geta valið hárlit og hæð

Þegar verðskrá Livio er skoðuð vekur athygli að þar er talað um svokallað millimakagjald sem leggst ofan á hefðbundið verð fyrir glasafrjóvgun. „Einstaka sinnum óska samkynja pör, tvær konur sem eru par, eftir því að önnur gangi með barn sem hefur skapast úr eggi hinnar. Þá þarf meðferðin í raun að beinast að báðum einstaklingunum og því fylgir meiri vinna,“ segir Snorri. Aðspurður segir hann pör almennt skilja þessa auka greiðslu þegar málið hafi verið útskýrt. „Það kemur til töluvert meiri vinna en þegar konan notar sín eigin egg,“ segir hann.

Ef konur vilja fá gjafasæði vísar Livio eins og staðan er á danskan sæðisbanka, European sperm bank. „Þar geta konur skráð sig og fengið upplýsingar um gjafana. Sumar vilja fá miklar upplýsingar en aðrar litlar. Algengt er að fólk sé að leita eftir útlitseinkennum sem svipa til eigin útlits en meðal þess sem hægt er að velja úr er háralitur, augnlitur, hæð, þyngd og menntun. Þetta er þó mismunandi eftir sæðisbönkum,“ segir Snorri.

Óska eftir sæði og eggjum

Það er síðan tiltölulega nýtilkomið að karlmenn geti gefið sæði hér á landi. „Við erum að reyna að skapa hér sæðisbanka og hugmyndin er að þetta verði sameiginlegur sæðisbanki allra Livio-deildanna sem eru níu, í Svíþjóð, Noregi og á Íslandi,“ segir hann.

Þeir sem vilja gefa sæði tilkynna um þann áhuga sinn á heimasíðu Livio. „Það er síðan haft samband við þá og þeir þurfa að gefa upp ákveðnar upplýsingar, fara í læknisviðtal, blóðprufu, sæðisprufu og fleira til að hægt sé að meta hvort þeir séu fýsilegir sæðisgjafar. Þá er farið vandlega í gegn um þeirra sjúkrasögu og þeir fá viðtal við félagsráðgjafa. Ef allt gengur upp er þeim boðið að koma og gefa sæði,“ segir Snorri en greiddar eru um sjö þúsund krónur fyrir hvern skammt.

„Við óskum gjarnan eftir að þeir gefi oft sæði, kannski tíu sinnum. Það er mikil eftirspurn eftir gjafasæði. Þetta er stór og falleg gjöf. Við byrjuðum upp úr áramótum að vekja athygli á þessari þörf og fá karla til að gefa. Við viljum líka halda því áfram á lofti að það vantar líka egg. Það er afskaplega mikið af fólki sem er gjafmilt og stórhuga, og fallegt að fólk vilji gefa þessa gjöf,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Í gær

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd