fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Ótrúlegur fengur hollensku lögreglunnar í reiðskóla

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 13. ágúst 2020 07:00

Húsnæði reiðskólans. Mynd:Hollenska lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku lét hollenska lögreglan til skara skríða gegn reiðskóla  í Nijeveen. Þetta var velheppnuð aðgerð því í henni komst upp um stærsta fíkniefnamálið í sögu Hollands.

17 manns voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsóknar málsins. Í reiðskólanum fannst vel útbúin fíkniefnaverksmiðja. Samkvæmt The Guardian þá er þetta stærsta fíkniefnaverksmiðjan sem fundist hefur í Hollandi. Þar var hægt að framleiða 200 kíló af kókaíni á dag. Söluverðmæti slíks magns hleypur á hundruðum milljóna íslenskra króna.

Öflug framleiðslulína var í húsinu. Mynd:Hollenska lögreglan

Það voru þungvopnaðir lögreglumenn sem réðust til atlögu við reiðskólann á föstudaginn. Þeir notuðust við brynvarinn bíl við aðgerðina. Það var þó ekki fyrr en á þriðjudaginn sem lögreglan skýrði frá aðgerðinni og birti meðfylgjandi myndir frá reiðskólanum.

13 hinna handteknu eru kólumbískir ríkisborgarar, þrír eru hollenskir ríkisborgarar og einn er tyrkneskur. 64 ára Hollendingur, sem er talinn eigandi reiðskólans, er meðal hinna handteknu. Lögreglan lagði hald á mikið af tækjum og tólum til fíkniefnaframleiðslu auk efna sem tengjast slíkri framleiðslu.

Starfsmenn gátu gist í húsinu. Mynd:Hollenska lögreglan
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin

Er þér illt í maganum? – Stress gæti verið orsökin