fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fréttir

Segir Ísland svo gott sem lokað fyrir ferðamennsku

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. júní 2020 07:40

Jóhannes Þór Skúlason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ánægjulegt að verið sé að slaka á þeim ferðatakmörkunum sem hafa verið í gildi í Evrópu. En ný reglugerð heilbrigðisráðherra valdi því að í augum ferðaþjónustunnar sé Ísland svo gott sem lokað fyrir ferðamennsku. Ferðaþjónusta hefur nær algjörlega stöðvast á heimsvísu en Jóhannes segir að fyrir okkur Íslendinga sé mjög mikið í húfi þar sem við eigum meira undir ferðaþjónustu sem atvinnugrein en mörg önnur ríki.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Jóhannesi að það sé jákvætt að verið sé að aflétta ferðahömlum en það skerði möguleika ferðaþjónustunnar að ýmsar hindranir eru settar upp í sóttvarnarskyni. Frá og með deginum í dag er öllum sem koma til landsins og hafa dvalið í meira en sólarhring í löndum sem sóttvarnarlæknir skilgreinir sem áhættusvæði skylt að fara í 14 daga sóttkví. Það er þó hægt að losna við hana með því að fara í sýnatöku sem verður án endurgjalds fram til næstu mánaðamóta. Frá 1. júlí mun sýnataka kosta 15.000 krónur.

Morgunblaðið hefur eftir Jóhannesi þeir sem hafi verið búnir að bóka ferðir, sérstaklega hópferðir, haf miklar áhyggjur af þessum hindrunum hvað varðar skimun og að ekki verði hægt að framvísa vottorðum erlendis frá. Reglugerðin valdi því að það sé of mikil fjárhagsleg áhætta við að koma hingað til lands þar sem fólk geti ekki verið öruggt um að þurfa ekki að fara í sóttkví fyrr en það er komið hingað. Það geti haft mikið fjárhagslegt tjón í för með sér auk þess sem það eyðileggi fríið.

„Það má segja að þetta hafi þau áhrif að ferð til Íslands sé einhvers konar lotterí. Enginn ferðast með fjölskylduna til annars lands til að sitja inni á hótelherbergi í fjórtán daga og horfa út um gluggann.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara
Fréttir
Í gær

Tölvuþrjótum tókst að afrita gögn – Hafa ekki birt þau eða hótað birtingu

Tölvuþrjótum tókst að afrita gögn – Hafa ekki birt þau eða hótað birtingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Margeir og Kitty til liðs við KAPP

Margeir og Kitty til liðs við KAPP
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax

Bjóða fasteignaeigendum að fá heilt ár af leigutekjum greitt út strax