fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Fókus

Skilnaðir fræga fólksins á tímum kórónaveirunnar

Fókus
Mánudaginn 8. júní 2020 20:00

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi sérfræðinga hefur spáð aukinni skilnaðartíðni í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Hér gefur að líta þekkta Íslendinga sem skildu eða slitu ástarsamböndum á tímum kórónaveirunnar. Nú taka vafalaust við nýir og spennandi tímar hjá þessu efnilega og eftirsóknarverða fólki.

Bríet. Mynd/Stefán

Bríet

Ein efnilegasta söngkona landsins er á lausu. Bríet Ísis Elfar vakti fyrst athygli í Iceland Got Talent og var valin bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2019. Hún var um árabil í sambandi með Halldóri Karlssyni, sem hefur gert garðinn frægan í ýmsum íþróttum og líkamsrækt.

Högni og Snæfríður. Mynd/Eyþór

Högni Egils og Snæfríður Ingvars

Snæfríður Ingvarsdóttir, ein efnilegasta leikkona landsins, og hinn hæfileikaríki Högni Egilsson, söngvari Hjaltalín, hættu saman eftir sex ára samband. Snæfríður útskrifaðist úr leiklist frá Listaháskólanum vorið 2016 og hefur síðan slegið í gegn í hverju leikverkinu á fætur öðru og var tilnefnd til Eddunnar, strax ári eftir að hún útskrifaðist.

Gurrý. Mynd/Sigtryggur Ari

Gurrý þjálfari

Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý eins og hún er kölluð, er nýskilin að borði og sæng við eiginmann sinn til sautján ára. Gurrý er einn vinsælasti þjálfari landsins og var þjálfari í raunveruleikaþættinum Biggest Loser Ísland.

Kristín Ýr.

Kristín Ýr

Fyrrverandi fréttakonan og almannatengillinn Kristín Ýr Gunnarsdóttir er laus og liðug – bæði við COVID og karlmenn. Kristín fékk veiruna en er frísk og á lausu. Hún og alþingismaðurinn Kolbeinn Óttarsson Proppé höfðu verið að rugla saman reytum.

Manuela og Jón. Mynd/Instagram

Manuela og Jón dansari

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Manuela Ósk Harðardóttir og dansarinn Jón Eyþór Gottskálksson hættu saman, eftir um hálfs árs samband. Þau kynntust eins og frægt er orðið í þáttunum Allir geta dansað á Stöð2.

Hanna Stína.

Hanna Stína innanhúsarkitekt

Einn vinsælasti innanhússarkitekt landsins, Hanna Stína Ólafsdóttir, er nýskilin og á lausu. Hanna Stína er mjög eftirsótt fyrir smekkvísi sína og einstakt auga fyrir fegurð og notagildi. Hún er vinsæl og vinmörg, enda geislar af henni hvar sem hún fer.

Anna Lilja og Grímur.

Anna Lilja og Grímur

Athafnakonan Anna Lilja Johansen og Grímur Alfreð Garðarsson, einn eigandi Best Seller veldisins, fóru sitt í hvora áttina fyrir stuttu. Anna Lilja þykir ákaflega smekkleg og hefur komið að stofnun fatahönnunarmerkja á borð við Another Creation, en hún lauk nýverið mastersprófi í fjármálum.

Brynjólfur Löve og Kristín Péturs.

Brynjólfur Löve og Kristín Péturs

Áhrifavaldaparið Brynjólfur Löve Mogensen og Kristín Pétursdóttir hættu saman í vor. Þau voru eitthvert vinsælasta par Íslands og mjög dugleg að deila myndum og myndskeiðum hvort af öðru á samfélagsmiðlum. Brynjólfur starfar sem markaðsstjóri KIWI og Kristín er leikkona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kynlíf með kærastanum er ótrúlegt – En það sem hún fann í tölvunni sneri veröld hennar á hvolf

Kynlíf með kærastanum er ótrúlegt – En það sem hún fann í tölvunni sneri veröld hennar á hvolf
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kogga og Magnús giftu sig á dánarbeði hans – „Hann náði að segja já, svo var hann farinn“

Kogga og Magnús giftu sig á dánarbeði hans – „Hann náði að segja já, svo var hann farinn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Birti óræð skilaboðum nokkrum dögum fyrir sambandsslitin

Birti óræð skilaboðum nokkrum dögum fyrir sambandsslitin
Fókus
Fyrir 2 dögum

Var alvarlega að íhuga skilnað stuttu fyrir greininguna

Var alvarlega að íhuga skilnað stuttu fyrir greininguna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ísland og Inga í aðalhlutverki í myndbandi nýjasta lags Bryan Adams

Ísland og Inga í aðalhlutverki í myndbandi nýjasta lags Bryan Adams
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hulk Hogan átti eiginkonu og tvö börn en aðeins eitt þeirra fær að erfa hann

Hulk Hogan átti eiginkonu og tvö börn en aðeins eitt þeirra fær að erfa hann
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Þetta situr ennþá í mér í dag“

„Þetta situr ennþá í mér í dag“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrverandi bryti bresku konungsfjölskyldunnar sviptir hulunni af fjölskyldudeilum og af hverju Harry á ekki afturkvæmt

Fyrrverandi bryti bresku konungsfjölskyldunnar sviptir hulunni af fjölskyldudeilum og af hverju Harry á ekki afturkvæmt