fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fréttir

Lufthansa hefur reglulegar ferðir til Íslands

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 4. júní 2020 14:40

Mynd af Facebook-síðu Lufthansa

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þýska flugfélagið Lufthansa hefur reglulegt flug til Íslands í byrjun júlí og verður með þrjár ferðir í viku hingað til lands. Þetta kemur fram í frétt á vefnum Turisti.is.

Til að byrja með munu þotur Lufthansa fljúga hingað tvisvar í viku frá Frankfurt og vikulega frá München. Íslenskir farþegar geta þá fundið tengiflug áfram með félaginu frá þessum flugvöllum lengra út í heim.

Samkvæmt frétt Túrista liggur ekki fyrir hvaða vikudaga verður flogið fyrir utan að brottfarir frá Keflavíkurflugvelli til Frankfurt verða á fimmtudögum og laugardögum til að byrja með.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður

Vegfarandi stórslasaðist eftir að ekið var á hann og hund hans á Langholtsvegi – Ökumaðurinn sýknaður
Fréttir
Í gær

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“

Fékk hroll þegar hún las bréf MAST um mál hundsins Úffa – „Stofnanir verða að sýna mannúð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara

Landsréttur mildaði verulega dóm yfir ungum stórsmyglara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga

Mohamad Kourani kominn á almennan gang á Hólmsheiði innan um tvo Alzheimer-sjúklinga