Þann 15. maí rennur út reglugerð um ferðtakmarkanir en þær fela helst í sér að allir sem koma til landsins þurfa að fara í 14 daga sóttkví.
Núna kynnir ríkisstjórnin á blaðamannafundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu nýja útfærslu á þessum takmörkunum.
Á fundinn eru mætt Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson sveitastjórnar- og samgönguráðherra og þeir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson úr Almannavarnateyminu. Einnig Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Þórólfur hefur sagst ætla að leggja til að krafan um tveggja vikna sóttkví verði framlengd.
Nýju reglurnar gilda frá 15. maí, eða næsta föstudag. Þær fela í sér að Færeyjar og Grænland verða teknar af listanum um hættusvæði.
Stefnt er að því að eigi síðar en 15. júní geti ferðamenn farið í skimun á Keflavíkurflugvelli eða framvísað heilbrigðisvottorði í stað þess að fara í sóttkví. Ennfremur verður þeim gert skylt að hlaða niður smitrakningarappi.
Unnin verður hagræn greining á skimunaraðgerðinni en hún kemur til með að verða kostnaðarsöm. Greiningunni á að vera lokið fyrir mánaðamót.
Katrín segist líta á þetta sem varfærið skref. Markmiðið sé að aflétta í varfærnum skrefum. Hún vill tryggja að enginn sem komi hingað til lands komi með veiruna í farteskinu. Tillögurnar eru unnar í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld, Íslenska erfðagreiningu og fleiri aðila. Þetta er unnið í samvinnu fimm ráðuneyta og Almannavarna auk ÍE.
Óvíst er um opnun skemmtistaða og verið er að kanna að mögulega verði flýtt fyrir að þeir fái að opna. Að óbreyttu verða þeir lokaðir til 15. júní.
Fyrirhugað er að veirufræðideild Landspítala Háskólasjúkrahúss annist sýnatöku á Keflavíkurflugvelli og greiningu. Niðurstaða á að geta legið fyrir samdægurs og er gert ráð fyrir að farþegar geti farið til síns heima eða á gististað uns hún liggur fyrir. Þar með sleppa farþegar við að fara í tveggja vikna sóttkví en þetta tekur gildi 15. júní. Þangað til gilda reglur um sóttkví.