fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

„Mannréttindi vinna alltaf“

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja föður barns, sem fæddist andvana, um orlof felld úr gildi

Björn Þorfinnsson
Mánudaginn 18. september 2017 09:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum himinlifandi með þessa niðurstöðu. Mannréttindi vinna alltaf. Það er ekki víst að þetta gagnist okkur en að minnsta kosti er núna búið að ryðja brautina þannig að næsta par þarf ekki að ganga í gegnum sömu erfiðleika. Það er nógu erfitt að takast á við sorgina þó að maður sé ekki að glíma við kerfið líka,“ segir Sigrún Ásta Brynjarsdóttir í samtali við DV. Í aprílbyrjun greindi DV frá því að unnusti Sigrúnar Ástu, Magnús Óskar Þórðarson, hefði fengið synjun á umsókn í fæðingarorlofssjóð í kjölfar þess að dóttir þeirra, Emma, fæddist andvana. Ástæðan var sú að parið unga, sem síðan hefur gengið í það heilaga, var ekki skráð í formlega sambúð. Þau kærðu niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs og í vikunni bárust þær fréttir að ákvörðunin hefði verið felld úr gildi og að stofnuninni hefði verið óheimilt að synja Magnúsi um fæðingarorlof á þessum grundvelli.

„Það fá engin orð lýst þeirri sorg sem við höfum upplifað“

Ósveigjanleiki kerfisins var salt í sárið hjá parinu sem var í miðju sorgarferli. „Að jarða barnið sitt er eitthvað sem við óskum ekki okkar verstu óvinum. Það fá engin orð lýst þeirri sorg sem við höfum upplifað. Tímabilið eftir fæðinguna var eins og í móðu en ég er fegin að hafa ekki fengið fregnir af þessu óréttlæti þá,“ sagði Sigrún Ásta í áðurnefndu viðtali við DV í apríl.

Í stað þess að njóta samvista við nýfætt barn sitt þurftu Sigrún Ásta og Magnús Óskar að skipuleggja útför þess og huga að margs konar formsatriðum. Eitt af því var það að heimsækja skrifstofu sýslumanns í Borgarnesi þar sem þau sóttust eftir því að fá faðerni barnsins viðurkennt. Í kjölfarið sóttu þau um í Fæðingarorlofssjóði. Nokkrum vikum síðar barst synjun frá báðum stofnunum á þeim grundvelli að Sigrún Ásta og Magnús Óskar hefðu ekki verið skráð í sambúð.

Að jarða barnið sitt er eitthvað sem við óskum ekki okkar verstu óvinum.

Frábær vinnuveitandi

„Það stendur ekkert í lögum um tilvik sem þetta, enda byggist synjun Þjóðskrár á mati stofnunarinnar. Ef dóttir okkar hefði fæðst og lifað í nokkrar klukkustundir þá hefði þetta farið í gegn. Maður upplifir að líf hennar sé minna virði af því að hún var látin þegar hún fæddist,“ sagði Sigrún Ásta enn fremur.

Við tóku erfiðir tímar sem þó urðu bærilegri sökum hlýju og velvilja sem parið unga upplifði í sínu nánasta umhverfi. Meðal annars fékk Magnús Óskar frí frá vinnu á fullum launum í einn mánuði meðan á sorgarferlinu stóð. „Það var ómetanlegt að finna hvað við eigum góða að,“ segir Sigrún Ásta.

Í kjölfar fréttarinnar hafði lögfræðingurinn Þorgils Þorgilsson, einn eigenda Juvo lögmanna, samband við Sigrúnu Ástu og Magnús Óskar og bauð þeim þjónustu stofunnar þeim að kostnaðarlausu til þess að freista þess að fá óréttlætinu hnekkt. Áslaug Lára Lárusdóttir, lögfræðingur hjá Juvo lögmönnum, tók við málinu og í sumar var ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í vikunni bárust loks þær fréttir að ákvörðunin hefði verið felld úr gildi og stofnunin þyrfti að endurskoða málið. „Það er ekkert víst að Magnús fái fæðingarorlof úr þessu. Það var heldur aldrei aðalatriðið heldur að um óréttlæti var að ræða. Við vildum því taka slaginn til þess að þrýsta á breytingar,“ segir Sigrún Ásta.

Úrskurðurinn er skref í þágu jafnréttis

Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður segir að túlkun Fæðingarorlofssjóðs á lögunum hafi verið röng og leitt til ómöguleika sem nú hefur verið leiðréttur. Hún fagnar úrskurði kærunefndar og segir hann skref í þágu jafnréttis. „Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs við andvanafæðingu samanber 12. grein fæðingarorlofslaga. Túlkun og framkvæmd Fæðingarorlofssjóðs hefur aftur á móti verið sú að við fæðingu andvana barns eigi faðir ekki rétt á greiðslum frá sjóðnum ef hann hefur ekki verið í hjúskap eða sambúð með móður. Þessi túlkun sjóðsins byggði á því að í öðru ákvæði laganna eru sett þau skilyrði fyrir rétti til fæðingarorlofs að foreldri fari með forsjá barnsins eða fyrir liggi samþykki um umgengni á fæðingarorlofstíma,“ segir Áslaug Lára.

Að hennar sögn er úrskurðurinn mikilvægt fordæmi varðandi jafnrétti kynjanna.
Áslaug Lára Lárusdóttir, lögmaður Að hennar sögn er úrskurðurinn mikilvægt fordæmi varðandi jafnrétti kynjanna.

Hún segir auðséð að ekki sé hægt að bera saman þessar ólíku aðstæður þar sem annað fjallar um rétt í tengslum við umönnun barns eftir fæðingu en hitt um fæðingu andvana barns. „Með öðrum orðum byggði túlkun Fæðingarorlofssjóðs á lagaákvæði sem getur ekki átt við um þessar aðstæður. Fyrrgreint skilyrði hafi leitt til ómöguleika þar sem faðir öðlast ekki sjálfkrafa forsjá barnsins, sé hann ekki í hjúskap eða sambúð, og ekki er hægt að skrá faðerni þegar um andvana fæðingu er að ræða samkvæmt núgildandi reglum. Þannig gæti enginn faðir í slíkri aðstöðu uppfyllt skilyrðin sem Fæðingarorlofssjóður hefur sett um rétt til fæðingarorlofs við andvana fæðingu,“ segir Áslaug Lára.

Markmið fæðingarorlofs við andvana fæðingu barns er að veita foreldrum svigrúm til að jafna sig á áfallinu sem því fylgir. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs í máli Magnúsar Óskars hafi svipt hann því svigrúmi. „Sami réttur á því að gilda fyrir feður sem mæður, óháð því hvert hjúskapar- eða sambúðarform þeirra er. Þetta hefur nú úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála staðfest með því að fella úr gildi ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um synjun á fæðingarorlofi til föður andvana barns, sem ekki var í hjúskap eða sambúð með móður. Úrskurðurinn er mikilvægt fordæmi varðandi jafnrétti kynjanna og skref í þágu jafnréttis,“ segir Áslaug Lára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum
Fréttir
Í gær

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi