Yfirmaður hjá geimhernum segir að rússnesk yfirvöld hafi sent gervihnött af stað í nóvember síðastliðnum og stuttu síðar hafi annar gervihnöttur verið sendur af stað. Hann segir ennfremur að þessir gervihnettir hafi nálgast bandarískan gervihnött og hagi sér á svipaðan hátt og gervihnettir sem Rússar settu á loft árið 2017, en rússnesk yfirvöld lýstu þeim sem „skoðunar gervihnöttum“.
Þetta er í fyrsta sinn sem yfirlýsing af þessu tagi kemur frá geimhernum, en að undanförnu hafa Bandaríkjamenn haft auknar áhyggjur af því hvað anstæðingar þeirra aðhafast úti í geimnum. Þessar áhyggjur eru ein af ástæðum þess að Bandaríkjamenn hafa, í fyrsta sinn síðan 1947, stofnað nýja deild innan hersins. Á mánudag lagði ríkisstjórn Donald Trump fram fjárhagsáætlun sína fyrir Pentagon, en þar fer ríkisstjórnin fram á 18 milljarða bandaríkjadala til þess að reka geimherinn og sinna annarri starfsemi í geimnum. Time Magazine var fyrst til þess að greina frá þessu.
Samkvæmt TASS fréttastofunni sendi gervihnötturinn sem um ræðir, annan gervihnött frá sér í desember á síðasta ári og samkvæmt rússneska varnarmálaráðuneytinu, er tilgangur tilraunarinnar að meta ástand annarra rússneskra gervihnatta.
Fulltrúi bandaríska geimhersins segir að athafnir Rússa setji landið í flokk þeirra sem „hafa gert geiminn að stríðssvæði“. Hann segir einnig að svipaðar athafnir annars staðar myndu vera túlkaðar sem ógnandi hegðun og að þær gætu skapað hættuástand í geimnum. Bandaríkin líta þetta alvarlegum augum og segja þetta ekki vera ábyrga hegðun. Hann segir ennfremur að rússneski gervihnötturinn hafi líkst vopni þegar hann skaut hlut á miklum hraða út í geim, eftir að honum hafði verið skotið á loft árið 2017.