fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Karlmaður skaut úr byssu á vinnustað Dagbjartar: „Versti viðskiptavinur allra tíma er fundinn“

Dagbjört Barringer segist enn vera að jafna sig eftir skotárásina á laugardaginn

Hjálmar Friðriksson
Mánudaginn 3. júlí 2017 09:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagbjört Barringer, sem er búsett í Washingtonfylki í Bandaríkjunum, varð vitni af skotárás í Southcenter verslunarmiðstöðinni, en þar starfar hún sem förðunarfræðingur. Dagbjört segir í samtali við DV enn vera í sjokki og ekki alveg búin að jafna sig eftir áfallið. „Síðan þetta gerðist hef ég sofið meira en fjóra tíma. Ég man allt í móðu,“ segir Dagbjört.

Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að engan skaðaði í árásinni en karlmaður skaut úr byssu í Southcenter verslunarmiðstöðinni á laugardaginn rétt fyrir klukkan níu að kvöldi. Verslunarmiðstöðin var rýmd en maðurinn hefur ekki enn verið handtekinn.

Dagbjört segist enn vera að vinna úr áfallinu. „Líðan er óskýr, ég er annaðhvort með mikinn galsa og fliss eða lítil í mér og leið. Ég finn að ég er ennþá að vinna úr áfallinu, ég skelf og hugsanir eru í móðu. Svo inn á milli finnst mér ég vera alger bjáni að líða svona því það var enginn skotinn,“ segir Dagbjört.

Dagbjört greindi frá upplifun sinni innan Facebook-hópsins Sögur af dónalegum viðskiptavinum í gær. „Í gær var unglingur í verslunarmiðstöðinni minni reiður, dró upp byssu og hleypti af. Ég er að vakna úr lyfjamókinu (var gefið róandi til að geta sofið) og það fyrsta sem ég hugsaði var að ég held ég geti aldrei farið aftur í vinnuna, annað var að ég er búin að vinna þennan hóp. Versti viðskiptavinur allra tíma er fundinn,“ skrifaði Dagbjört. Hún segir í samtali við DV að hún fari þó í vinnuna á morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“