fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Heimsfrægur töframaður segist svikinn af Einari Mikael: „Á ekki að vinna með börnum“

Shin Lim, heimsmeistari í töfrabrögðum, segist illa svikinn af Einari Mikael töframanni.

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 14. júní 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski töframaðurinn Shin Lim segist hafa verið illa svikinn af íslenska töframanninum Einari Mikael. Shin átti að stíga á svið Andrews Theater á Ásbrú um helgina en ákvað að fara fyrr af landi þar sem honum var orðið ljóst að hann myndi ekki fá greitt fyrir sýningar sínar. „Ég hugsaði bara: Guð minn góður, þessi maður á ekki að vinna með börnum,“ segir Shin í samtali við DV.

Shin var krýndur heimsmeistari í töfrabrögðum árið 2015 og er meðal vinsælustu töframanna heims. Hann er til að mynda einn fárra töframanna sem hafa náð að plata Penn og Teller, sennilega frægustu töframenn heims, í þáttum þeirra Penn and Teller Fool us. Á Íslandi upplifði Shin þó sjálfur að vera plataður.

Einar Mikael segir í samtali við DV að það hafi verið Shin sem hafi verið ófaglegur. „Það var ekki sýning um helgina eins og við vonuðumst til. Þetta gekk ekki upp eins og við höfðum óskað eftir,“ segir Einar Mikael.

Segir hann lofa upp í ermina á sér

Shin segir að Einar Mikael hafi svikið sig um mörg hundruð þúsund króna í laun sem hann hafði lofað sér. „Mér er í rauninni sama um peninganna, hjá mér snýst þetta um prinsipp. Ég sagði það við hann að það gerðist oft í þessum bransa að færri koma á sýningu en búist var við. Maður verður samt að standa við orð sín. Orðspor manns er það mikilvægasta í þessum bransa.“

„Ég komst að því að Einar Mikael er maður sem lofar upp í ermina á sér. Ég komst að því hvernig mann hann hefur að geyma þegar ég talaði við hann. Hann talaði um að allir milljónamæringar svíki og ljúgi að öðru fólki. Þannig hugsar hann og mér finnst það hræðilegt því hann vinnur með börnum. „Ég hugsaði bara: Guð minn góður, þessi maður á ekki að vinna með börnum,“ segir Shin.

Var fyrst lofað 5 milljónum

Shin segir að Einar Mikael hafi samið við sig um að fá 18 þúsund dollara, eða um 1,8 milljónir króna, greidda í heildina fyrir að koma fram á um tíu viðburðum, þar á meðal á aðalsýningunni á Ásbrú. Hann segist þó einungis hafa fengið ríflega hálfa milljón króna í greiðslu.

Einar Mikael segir þetta ekki rétt og hann hafi greitt Shin 9 þúsund dollara. „Það var búið að greiða honum fyrirframgreiðslu sem voru 9 þúsund dollarar. Það var búið að leggja upp tvær sýningar sem hann var búinn að staðfesta að hann ætlaði að taka þátt í á Íslandi, sem var umfram sýninguna í Andrews Theater. Hann ákvað að hætta við þær sýningar.“

„Ég er með kvittanir um millifærslur og allt. Þetta var svolítið ófaglegt hjá honum. Við hittumst eftir að hann var búinn að vera hérna í viku á Íslandi og við fórum yfir stöðuna og vorum spenntir fyrir helginni. Þá var hann að segja okkur að hann þyrfti að fá aðra fyrirframgreiðslu fyrir þessa helgi, upp á meira en við vorum búnir að tala um,“ segir Einar Mikael.

Einar Mikael sendi afrit af þessum millifærslum til DV og sýna þær þrjár greiðslur til Shin. Í fyrsta lagi 5.700 dollara millifærslu í gegnum Paypal, sem er sú upphæð sem Shin vísar til. Sú greiðsla fór fram þann 26. maí síðastliðinn. Auk þessa sendi Einar Mikael afrit af tveimur erlendum millifærslum á félag Shin, Tune2Magic, upp á eitt þúsund dollara annars vegar og 2.500 dollara hins vegar. Þessar greiðslur fóru í gegn 24. og 30. maí síðastliðinn.

Shin segir að þrjú þúsund dollararnir sem Einar Mikael greiddi honum hafi ekki verið hluti af fyrrnefndum samningi. „Ég greiddi mér 5.700 dollara fyrir fyrstu töfrasýningarnar á minni stöðunum. Ég gerði myndband með honum tveimur mánuðum áður en ég kom til Íslands fyrir þúsund dollara. Tvö þúsund dollararnir voru svo fyrir fyrri hluta Sjómannahátíðarinnar, sem var utan samkomulagsins. Hann greiddi aldrei 11 þúsund dollarana sem hann skuldaði mér og þess vegna hætti ég öllum sýningum seinni vikuna,“ segir Shin.

Var lofað fimm milljónum

Shin var þó lofað umtalsvert meira þegar hann var fyrst bókaður af Einari Mikael í mars. Shin hefur áframsent til DV tölvupóstsamskipti móður sinnar, sem er umboðsmaður hans, og Einars. Þar lofar Einar Mikael Shin gulli og grænum skógum.

Shin, eða Mozart töfrabragðanna líkt og Einar Mikael kallar hann í tölvupóstinum, átti að fá 50 þúsund dollara, um 5 milljónir króna, fyrir 25 töfrasýningar út allan júnímánuð. Ekki nóg með það, heldur átti Shin að dvelja á glæsilegustu hótelum Reykjavíkur, hafa einkabílstjóra og aðgang að heilsulind World Class. Ekkert af þessu rættist og svaf Shin í íbúð félaga Einars.

Hér má sjá tölvupóst sem Einar Mikael sendi umboðsmanni Shin þann 28. mars. Þá stóð til að Shin yrði mánuð á Íslandi og afbókaði hann því sýningar í Rússlandi.
Skjáskot af tölvupósti Hér má sjá tölvupóst sem Einar Mikael sendi umboðsmanni Shin þann 28. mars. Þá stóð til að Shin yrði mánuð á Íslandi og afbókaði hann því sýningar í Rússlandi.

Mynd: Skjáskot

Langaði til Íslands

Líkt og fyrr segir bauð Einar Mikael Shin að koma og vera á Íslandi í nærri mánuð. „Mig langaði til Íslands og þess vegna ákvað ég að afbóka aðrar sýningar í mánuðinum. Þremur vikum áður en ég átti að koma til Íslands skiptir hann um skoðun og vill bara að ég komi í viku og launin verði einungis 18 þúsund dollarar. Þarna er ég löngu búinn að afbóka sýningar í Rússlandi og búinn að taka frá heilan mánuð fyrir Ísland. Þetta er bara upphafið,“ segir Shin.

Hann ákvað þó að slá til og koma í viku til Íslands, ekki síst þar sem hann langaði að sjá land og þjóð. „Við vorum búnir að komast að samkomulagi um að hann myndi borga helminginn af geymslufénu áður en ég stigi á svið á Íslandi og hinn helminginn um miðja vikuna. Þremur dögum áður en ég átti að fljúga til Íslands frá Amsterdam var hann ekki búinn að panta fyrir mig miða né borga geymsluféð.

Ég hringi í hann og segi honum að þetta sé einfaldlega fáránlegt. Hann bókar fyrir mig flugið og borgaði bara fjórðung af geymslufénu. Hann sagði að það væri út af einhverju vandamáli tengdu bankanum. Ég var í Amsterdam og hafði ekki tíma til að rífast við hann svo ég samþykkti að koma, sem voru mikil mistök af minni hálfu,“ segir Shin.

Ground zero. Photo by @asgeirhelg

A post shared by Shin Lim (@shinlimmagic) on

„Þú varst að ljúga að mér bara rétt áðan“

Shin segir að vandamálin hafi haldið áfram eftir að hann lenti á Íslandi. „Þegar ég kveiki á símanum mínum við lendingu þá sendi ég honum SMS og spyr hann hvort hann sé með lykilinn að hótelherberginu mínu og hann svarar því játandi og segir að ég sé að gista á Brim Hótel. Ég spyr hann meira að segja hvort hann sé alveg viss um að herbergið sé bókað og hann svarar játandi.

Ég fer úr vélinni og hann sækir mig í Leifsstöð og við keyrum af stað. Þá segir hann mér að ég muni ekki gista á Brim Hótel heldur hjá vini hans. Ég var að hitta hann í fyrsta skipti svo ég lét það eiga sig en mig langaði að segja honum:

„Þú varst að ljúga að mér bara rétt áðan.“ Ég var mjög þreyttur svo ég sagði bara allt í lagi,“ segir Shin. Þar dvaldi Shin meðan hann var hér á landi ásamt félaga Einars. Shin áréttar að sá hafi verið indæll og ekkert upp á hann að klaga. Raunar tekur Shin það sérstaklega fram að það allir aðrir Íslendingar sem hann starfaði með hafi verið til prýði.

Hvað þetta varðar segir Einar Mikael að það hafi ekki gengið upp að fá styrki. „Við ætluðum að leggja upp með að fá styrki til að láta þetta ganga upp. En við fengum ekki spons eins og við vonuðumst til. Það bara gekk ekki upp en við ákváðum að gera það besta úr þessu. Hann gisti ekki hjá vini mínum, hann var í íbúð sem við fundum fyrir hann. Hann hafði íbúð fyrir sjálfan sig á fínum stað í Reykjavík,“ segir Einar.

Gat ekki gengið upp

Eftir að Shin kom til Íslands sýndi hann brögð sín á minni sýningum, svo sem á Vík í Mýrdal og vakti athygli á stærstu sýningunni á Ásbrú. Ekkert bólaði þó á greiðslu. „Þetta var bara fáránlegt. Hann reyndi að láta þetta líta út eins og ég væri gráðugur en ég sagði honum bara að við hefðum samið um þetta. Hann bjó til allskonar sögur eins og að staðirnir gætu ekki borgað sér. Hann sagði mér allskonar rugl, ég man það ekki allt. Síðan frétti ég það frá vini hans að hann væri algjörlega gjaldþrota og fyrsta greiðslan sem ég fékk var ekki komin frá honum heldur vini hans.

Ég sá líka að þetta gæti ekki gengið upp því að það voru til dæmis á Vík bara 10, 15 manns í salnum. Það eru mjög fáir og ég sá að þetta bara gat ekki gengið upp. Ég fann það á mér að það var ekki allt með feldu. Mér sýndist að Einar Mikael hafi haldið að það yrði húsfyllir og öll 200 sæti tekin, hann hafi bara talið að það yrði uppselt, og þá myndi hann geta borgað mér. Það er alveg hræðileg hugmynd,“ segir Shin og bætir við að slíkt geri enginn ábyrgur framleiðandi töfrasýninga.

Hélt að það yrði uppselt

Á þessum tímapunkti leist Shin ekkert á blikuna og segist hafa spurt Einar Mikael hvernig hann hugðist ætla að borga sér. „Ég gaf honum fullt af tækifærum. Hann sagði að hann myndi geta borgað mér fyrir ágóðann af stóru sýningunni á Ásbrú. En það voru bara tíu manns á sýningunum á undan. Og ég veit að það var bara búið að selja 60 miða á Ásbrú.

Hann lofaði að það yrði uppselt. Hann lofar alltaf rosalega miklu sem hann getur ekki staðið við, loforð sem eru ekki einu sinni raunveruleg. Þarna var kominn tími á að segja honum að ég ætlaði ekki að stíga aftur á svið og ég sagði honum að hann yrði að aflýsa seinni sýningum því fólk yrði mjög ósátt. Ég þurfti að borga flugfarið heim sjálfur, sem er enn annað dæmið um hvað þetta var fáránlegt. Ég hef aldrei þurft að gera það áður,“ segir Shin.

Einar Mikael telur að Shin hafi skemmt sér á Íslandi. „Þetta gekk mjög vel og ég held að hann hafi bara skemmt sér mjög vel á Íslandi. Við fórum með hann um Suðurlandið og sýndum honum helstu náttúruundur okkar. Hann ákvað að gera þetta svona,“ segir Einar Mikael töframaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Í gær

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Í gær

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Í gær

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“