Partývörubúðin Pippa var stofnuð af tveimur sprækum, metnaðarfullum og mjög uppteknum mömmum árið 2016. „Við höfðum haldið ótal afmæli og partý og tekið eftir gríðarlegri vöntun á smart, vönduðum og minna klisjulegum veisluvörum á markaðnum. Einnig höfðum við ósjaldan verið á ferðinni á eftir veisluvörum, fastar í föstudagstraffíkinni á milli staða. Því fannst okkur tilvalið að opna aðgengilega vefverslun með fallegar og vandaðar veisluvörur og bjóða upp á fyrsta flokks heimsendingarþjónustu,“ segir Erna Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Pippu.
Nú er ekkert mál að halda eftirminnilegar veislur
Vefverslunin var opnuð þremur mánuðum eftir að þessi snilldarhugmynd kom upp og hefur gengið vonum framar. Nú eru meðlimir Pippu þrír og enn fleiri þegar mikið er að gera. „Það er greinilega eftirspurn eftir flottum veisluvörum sem auðvelt er að nálgast. Við erum líka alltaf reiðubúnar að koma til móts við viðskiptavini okkar og auðvelda líf þeirra sem eru í óðaönn við að undirbúa veislu. Við sendum heim að dyrum og það er jafnframt hægt að fá uppblásin blöðrubúnt send heim innan höfðuðborgarsvæðisins.“
Veisluvörur sem tekið er eftir
Pippa er með fjölbreytt úrval af veisluvörum sem henta fyrir margs konar tilefni. „Viðskiptavinir okkar elska að fagna tímamótum ærlega og vilja að sjálfsögðu gera það vel. Við vildum því að netverslunin byði upp á öðruvísi vörur sem tekið væri eftir, því það vilja jú allir slá eftirminnilega í gegn þegar þeir halda upp á hin ýmsu tilefni. Partývörurnar okkar eru vinsælar hjá fólki á öllum aldri. Við eigum nokkra trausta „fastakúnna“ sem versla við okkur fyrir hvert einasta boð og höfum við séð um skreytingar hjá sömu fjölskyldum aftur og aftur; skírnir, fermingar og afmæli, jafnvel allt á sama árinu.“
Börnin dýrka blöðrur
Pippa er með frábært úrval af veisluvörum sem höfða jafnt til ungra barna og unglinga. „Það sem er algerlega ómissandi í barnaafmælið eru blöðrur og aftur blöðrur! Það er svo ótal margt hægt að gera með þær og það virðist aldrei vera nóg af þeim. Og það besta við blöðrurnar er að þær eru frekar saklausar. Við seljum einungis gæðablöðrur, unnar úr náttúrulegu latexi sem brotnar niður í náttúrunni. Auðvitað mælum við svo með því að gengið sé frá þeim í viðeigandi ruslatunnu, en það má flokka þær með lífrænum úrgangi. Stóru númerablöðrurnar í gulli eða silfri eru orðnar klassískar. Einnig slá pappadiskar og servíettur í frísklegum og fjörlegum stíl alltaf í gegn. Það setur gríðarlega mikinn svip á afmælið að hafa borðhaldið litríkt. Það gleður krakkana og ekki skemmir að fá allt veisluskrautið og borðhaldið sent heim að dyrum.“
Blöðruskúlptúrar sem tekið er eftir
Það fer varla framhjá neinum að þær stöllur elska blöðrur. „Blöðruskúlptúrarnir okkar hafa rækilega slegið í gegn síðan við kynntum þær landanum snemma á seinasta ári. Okkar stíll er lifandi og skemmtilegur og algjörlega í takt við það sem er að gerast í veisluskreytingum erlendis. Okkar blöðruskreytingar eru í öllum stærðum og gerðum og henta í allt frá litlum, krúttlegum skírnarveislum upp í stórar 900 manna veislur. Við bjóðum upp á boga, hjörtu og skúlptúr í okkar vinsæla stíl. Litaþemað er svo valið í samstarfi við þá sem halda veisluna. Blöðruskreytingar eiga svo sannarlega við í hinum ýmsu tilefnum og höfum við tekið að okkur afar fjölbreytt verk á ólíklegustu stöðum.“
Hægt er að skoða allar vörur og panta á heimasíðunni www.pippa.is. Vörur eru sendar heim með pósti og jafnan er hægt að tryggja afhendingu innan þriggja daga. Boðið er upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu og getur varan þá verið komin samdægurs ef pöntun berst snemma. Jafnframt er hægt að panta og vera í beinum samskiptum í gegnum Facebook-síðu Pippu. Við tökum vel á móti öllum vangaveltum sem koma upp varðandi veisluhald.
Fylgstu með Pippu á Instagram: Pippa Vefverslun
Pippa á Facebook: Pippa Rvk