Jeffrey Ross Gunther, nýskipaður sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, fundaði með Katrínu Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, í stjórnarráðshúsinu í dag. Katrín lýsti því þar yfir að hún sé reiðubúin að funda með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, þann 4. september næstkomandi. Þetta staðfesti Lára Björg Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, í samtali við Fréttablaðið.
Fréttablaðið greindi einnig frá því að það sé til skoðunar að lengja dvöl varaforsetans á Íslandi. Upphaflega stóð til að hann myndi funda með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra, þann 3. september næstkomandi og síðan myndi Pence halda út til Bretlands daginn eftir.
„Hingað kom nýr sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi á fund í forsætisráðuneytinu,“ sagði Lára Björg í samtali við Fréttablaðið.
„Á þeim fundi var sá möguleiki ræddur að varaforseti myndi framlengja dvöl sína og að forsætisráðherra og varaforsetinn myndu þannig ná saman á fundi 4. september þegar Katrín kæmi til baka frá Svíþjóð, og á þeim fundi lýsti forsætisráðherra sig reiðubúna til þess.“
Katrín ætlaði upphaflega ekki að funda með varaforsetanum og vakti það mikla athygli. Katrínu var hrósað og lastað til skiptis en Pence hefur mikið talað gegn réttindum ýmissa jaðarhópa í samfélaginu.