fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Betlari áreitti og ógnaði fólki – Hatursglæpur í Breiðholti

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 16. júlí 2019 08:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtíu mál voru bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá fimm síðdegis í gær til fimm í nótt.

Starfsfólk í matvöruverslun í hverfi 108 óskaði eftir aðstoð lögreglu laust fyrir klukkan hálf sjö í gærkvöldi vegna hóps fólks, líklega mótmælenda, sem voru með læti og gáfu frá sér ýmis dýrahljóð. Ekki kom til afskipta lögreglu þar sem fólkið yfirgaf verslunina fljótlega. Stuttu síðar veittu lögreglumenn bifreið athygli sem ekið var gegn rauðu ljósi í hverfi 105. Í ljós kom að ökumaður var undir áhrifum áfengis og var hann látinn laus að lokinni sýnatöku. Lögreglan stöðvaði annan ökumann undir áhrifum áfengis og fíkniefna í herfi 104 rétt fyrir klukkan hálf átta og nokkrar kvartanir bárust vegna ölvaðs fólks í miðbænum.

Í Breiðholti var kvartað yfir áreiti og ógnun frá betlara um kvöldmatarleytið. Hann brást illa við ef hann var hunsaður og var loks vísað í burtu af lögreglu. Þá var tilkynnt um hugsanlegan hatursglæp í efra Breiðholti. Veist var utandyra að þremur múslimskum konum og er málið í rannsókn.

Tilkynnt var um rúðubrot í Árbæjarskóla rétt fyrir sjö í gærkvöldi og rétt fyrir átta var tilkynnt um ofurölvi og ósjálfbjarga mann utandyra í íbúðarhverfi í hverfi 112. Maðurinn var vistaður í fangageymslu þar til ástand lagast. Þá var tilkynnt um eld í ruslagámi við Rimaskóla rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Slökkviliðið slökkti eldinn skömmu síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“

Jón Pétur dregur í land – „Ég tel hvorki jafnrétti, menntun né frelsi kvenna vera vandamál“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“

Lára ósátt við bílastæðamálin við Laugaveg 26 – „Svo eru þau að rukka allan sólarhringinn“
Fréttir
Í gær

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt

Pólsk kona fór til Íslands og skildi hund eftir í hryllingshúsi í heilt ár – Skítur og hland út um allt
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“