fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

900 Grillhús: Goðsögulegir borgarar beint frá býli

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 14. júní 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

900 Grillhús í Vestmannaeyjum opnaði fyrir níu árum og hitti fljótlega í mark, enda er maturinn þar unninn úr úrvals hráefni og borgararnir koma beint frá býli. „Vestmannaeyingar eru afar duglegir að fara út að borða enda er þar úrval af góðum veitingastöðum. Eyjamenn eru líka duglegir að panta sér veitingar heim, og panta þá hvort heldur er pitsur eða hamborgara frá okkur,“ segir Fanný Rósa Bjarnadóttir.

„Við erum afar þakklát fyrir góðan hljómgrunn meðal bæði heimamanna og ferðamanna sem sækja eyjarnar heim. Hingað koma mikið til heimamenn og erlendir ferðamenn, sérstaklega á sumrin, en svo þegar líður á verslunarmannahelgi og Goslokahátíðina þá eru íslenskir Eyjagestir að sjálfsögðu duglegir að koma við. Svo erum við alltaf með kokteil mánaðarins á góðum afslætti.“

Kjötið kemur beint frá býli

900 Grillhús býður upp á dýrindis hamborgara, dásamlegar flatbökur og djúsí steikur. „Hamborgararnir okkar eru víðfrægir, en kjötið úr þeim er ferskt gæðakjöt sem kemur beint frá Sogni í Kjós og er leitun að jafn bragðgóðum og flottum borgurum.“

Goðsögulegur humarborgari

Humarborgarinn má með sanni segja að sé orðinn að goðsögn bæði í Eyjum og utan þeirra. „Hráefnið er úrvals enda kemur kjötið beint frá býli. Humarinn kemur frá fiskvinnslufyrirtækjunum í Eyjum, svo hann er 100% ferskur og ljúffengur. Bernaise-sósan sem er borin fram með borgaranum er gerð á staðnum og mikill metnaður lagður í að allt sé sem best úr garði gert.“

„Við teljum okkur bjóða upp á bestu pitsurnar á Suðurlandi og þótt víðar væri leitað. En annars er alltaf best að prufa sjálfur,“ segir Fanný.

Það eru allir velkomnir á 900 Grillhús!

Vestmannabraut 23, 900 Vestmannaeyjar

Sími: 482-1000

Fylgstu með okkur á facebook: 900 Grillhús

Nánari upplýsingar má finna á vefíðunni 900grillhus.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum