fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Stefán svarar Björgólfi: „Gömlu vinirnir þurfa að útkljá sín á milli hvor þeirra er að segja ósatt“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 3. júní 2019 20:02

Stefán Einar Stefánsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Einar Stefánsson, höfundur bókarinnar WOW Ris og fall flugfélags, vísar á bug fullyrðingum Björgólfs Thors Björgólfssonar, þess efnis að hann hafi ekki verið hluthafi í WOW air. Björgólfur Thor birti í dag pistil á vefsíðu sinni þar sem hann sakar Stefán Einar um rangfærslur.

Sjá einnig frétt DV: Björgólfur sakar Stefán Einar um rangfærslur: „Persónulegur greiði við vin minn“

Þar segir meðal annars:

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir hafnar því alfarið sem kemur fram í bók Stefáns Einars Stefánssonar, að hann hafi verið hluthafi í WOW air. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu sem Björgólfur hefur birt á vefsvæði sínu. Björgólfur segir að eina aðkoma hans að félaginu hafi verið sú að fallast á að kaupa skuldabréf fyrir 3 milljónir evra í september síðastliðinn. Segir Björgólfur að sá gjörningur hafi verið vinargreiði. Hann segir jafnframt:

Rétt eins og aðrir skuldabréfaeigendur hef ég nú lýst kröfu í þrotabú WOW. Sú staðreynd ein staðfestir að ég var ekki hluthafi í félaginu.

Stefán Einar Stefánsson WOW

Stefán Einar: Skuldabréfaeigendur urðu hluthafar þegar skilmálar skuldabréfsins bresta

DV hafði samband við Stefán Einar vegna málsins. Hann sagði: „Þegar þú tekur þátt í skuldabréfaútboðiu þá ertu bara kröfuhafi en af því skilmálar skuldabréfsins bresta þá ákveða þeir að taka félagið yfir eins og þeir höfðu heimild til. Skúli lýsti því sjálfur yfir, tveimur dögum áður en félagið féll, að þeir hafi samþykkt að breyta kröfum sínum í félagið í hlutafé.“

Stefán Einar vísar jafnframt í frétt af þessu á Vísir.is frá 26. mars. Þar segir Skúli:

„Staðan er nokkuð góð eftir fréttir dagsins þar sem við vorum að tilkynna að skuldabréfaeigendur hafa samþykkt að breyta kröfum sínum í hlutabréf í félaginu. Þar með erum við að styrkja félagið allverulega þannig að það er jákvætt skref í rétta átt,“ segir Skúli.

Stefán segir jafnframt:

„Ég sé ekki ástæðu til að breyta þessu, staðreyndirnar liggja fyrir. En ef Björgúlfur ætlar að halda þessu fram þá þurfa gömlu vinirnir að útkljá sín á milli hvor þeirra er að segja ósatt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu
Fréttir
Í gær

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna

Pósturinn lokar tímabundið fyrir vörusendingar til Bandaríkjanna
Fréttir
Í gær

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann

Lífið í fangelsinu enginn dans á rósum fyrir morðingjann
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”
Fréttir
Í gær

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð
Fréttir
Í gær

Prís alltaf verið með lægsta verðið

Prís alltaf verið með lægsta verðið