Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, opnaði sig aðeins í viðtali við Sky Sports í dag.
Pochettino var beðinn um að svara algengum spurningum þegar leitað er að nafni hans á Google.com.
Ein af spurningunum var hvernig bíl Pochettino keyrir um á og svaraði hann ‘Bentley’.
Það var gjöf frá eiganda Tottenham, Daniel Levy en Pochettino býst við að þurfa að skila honum einn daginn.
,,Ég keyri um á Bentley. Það var gjöf frá Daniel Levy. Ég held samt að hann hafi tekið hann á láni,“ sagði Pochettino.
,,Við skulum sjá hvað gerist þegar samningnum lýkur. Hann er ennþá með lykla, kannski á síðasta deginum mínum hérna þá biður hann um lyklana aftur!“